Ef meirihlutinn hefði alltaf fengið að ráða, og ef minnihlutinn hefði alltaf farið að lögum, þá hefði aldrei orðið neitt þrælastríð. Indverjar hefðu aldrei risið gegn Bretum. Íslenskir verkamenn hangandi á horriminni hefðu sætt sig við 30% launalækkun í stað þess að berja kúgara sína með stólfótum fyrir utan Gúttó. Konur hefðu ekki kosningarétt, samkynhneigð væri skilgreind sem glæpur, verkalýðsfélög væru ekki til og flokkseinveldi væri skilgreint sem lýðræði. Gullfoss hefði þegar verið virkjaður og ég hefði verið brennd á báli fyrir trúvillu um það leyti sem bekkjarsystkini mín fermdust.
Greinasafn fyrir flokkinn: Andóf og yfirvald
Mannanafnalög eru ónothæf
Markmið mannanafnalaga er að stuðla að því að Íslendingar beri nöfn sem falla að beygingar- og hljóðkerfinu, lúti almennum stafsetningarreglum og séu fólki sæmandi.
Þegar listinn yfir leyfð mannanöfn er skoðaður kemur þó í ljós að undantekningarnar frá reglunum eru svo margar að reglurnar eru nánast ónothæfar. Það sem er leyfilegt í einu tilviki er bannað í öðru og þegar upp er staðið eru einu rökin þau að við séum orðin vön því að heyra annað nafnið en ekki hitt.
Borgaraleg óhlýðni Alþingis?
Samkvæmt fréttum gera reglur Evrópuráðsins ráð fyrir kynjakvótum. Hér segir að kynjahlutföll eigi að endurspegla kynjahlutföll á þingi og að minnst einn fulltrúi af því kyni sem á hallar skuli sitja í hverri nefnd.
Þessu er ekki hægt að framfylgja ef kosið er í nefndir. Samt er íslenska sendinefndin kosin.
Þjóðþingið gefur þannig skít í reglur Evrópuráðsins. Það verður ekki túlkað sem annað en yfirlýsing um að reglurnar eigi ekki rétt á sér. Kannski yfirlýsing um að kosningar séu lýðræðislegri en kynjakvótar.
Þegar almennir borgarar brjóta reglur meðvitað í pólitískum tilgangi, heitir það borgaraleg óhlýðni. Hvað heitir það þegar þjóðþing notar sömu taktík í fjölþjóðlegu samstarfi?
Ástandið
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/117804738405146
Barnaheimilið Litla Hraun?
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/531290983559777