Ef meirihlutinn hefði alltaf fengið að ráða, og ef minnihlutinn hefði alltaf farið að lögum, þá hefði aldrei orðið neitt þrælastríð. Indverjar hefðu aldrei risið gegn Bretum. Íslenskir verkamenn hangandi á horriminni hefðu sætt sig við 30% launalækkun í stað þess að berja kúgara sína með stólfótum fyrir utan Gúttó. Konur hefðu ekki kosningarétt, samkynhneigð væri skilgreind sem glæpur, verkalýðsfélög væru ekki til og flokkseinveldi væri skilgreint sem lýðræði. Gullfoss hefði þegar verið virkjaður og ég hefði verið brennd á báli fyrir trúvillu um það leyti sem bekkjarsystkini mín fermdust.
3 thoughts on “Samfélag án andspyrnu”
Skildu eftir svar
Þú verður að skrá þig inn til þess að rita athugasemd.
Lífið er samfeld barátta
Sammála. Nema hvað að sennilega hefðu eignalausir karlar ekki heldur haft kosningarétt.
Svolítið svoleiðis gott fólk!