https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10151215387027963
Greinasafn fyrir flokkinn: Andóf og yfirvald
Satanía
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/120763758092364
Óslóartréð harmað
Jón Gnarr er nú stundum dálítið skrýtinn.
Hroðalegt alveg að kveikja í jólatré sem hefur staðið þremur vikum fram yfir jól án þess að borgaryfirvöld hirtu um að láta fjarlægja það (og væntanlega saga það niður með ofbeldi). Keli vinur minn sem býr í Noregi hefur bent á að hneykslunina sem þetta tiltæki vakti meðal Norðmanna, megi merkja af fjölmiðlaumfjöllun um málið. Sem var engin, neinsstaðar nema á Íslandi.
Ekki stela kardó, steldu frekar 100 milljónum
Það er ekki fallega gert að stela beikoni og kökudropum frá varnarlausu fyrirtæki en hvaða gagn skyldi það nú eiga að gera að dæma manninn í skilorðsbundið fangelsi? Telja menn að það sé góð leið til að kenna honum að hætta að stela kökudropum?
Það er ömurlegt kerfi sem refsar útigangsmönnum og alkóhólistum fyrir sjúkleika sinn. Sama ömurlega kerfið og það sem sendir róna út á götuna með hótun um fangelsi ef hann finni sér ekki löglega leið til að verða sér úti um áfengi, býður ekki upp á neina leið til að taka á fólki sem dæmir sjálfu sér tvöfaldar mánaðartekjur öryrkja á dag (miðað við að það vinni alla daga.) Ekki einu sinni skilorð.
Mig langar ofboðslega mikið að vita hversu langt svona skítapakk getur leyft sér að ganga. Ef fólk má taka sér 270 þúsund í daglaun af hverju þá ekki alveg eins 300 þúsund eða tvær milljónir? Er nokkuð í lögum sem takmarkar rétt sjálftökufólks? Og ef svo er ekki, á virkilega ekkert að breyta því?
Þvaglátaeftirlit ríkisins
Fimmtán manns kærðir fyrir að pissa í miðbænum. Hversu margir ætli hafi þá sloppið?
Víst er að hér er ekki aðeins um að ræða umfangsmikið vandamál, heldur einnig vannýtta tekjulind. Einhvernveginn þarf að fjármagna þessi störf lögreglunnar sem eflaust hefur í ýmsu öðru að snúast, auk þess sem hlandstækjan truflar að líkindum næmt þefskyn þeirra lögregluþjóna sem gerðir eru út af örkinni til þess að hnusa eftir kannabisræktun. Auðvitað mætti koma á sérstökum hlandskatti en þar sem margir kasta aldrei af sér vatni á almannafæri væri það varla sanngjarnt. Það væri hinsvegar bæði hægt að auka tekjur ríkissjóðs stórlega og jafnframt skapa mörg störf með því að koma á sérstöku þvaglátaeftirliti.
Skikka þarf alla borgara til að skila inn þvagsýni við 15 ára aldur. Ráða svo sérstakt fólk, svokallaða hlandverði, til að fara með þvagleitartæki um bæinn á morgnana. Einnig þarf að koma á sérstakri þvaggreiningarstöð, þar sem hver pissupollur er rakinn til brotamannsins og senda fólki einfaldlega sektarmiða, líkt og stöðumælasektir.