https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10151215387027963
Greinasafn fyrir merki: Upplýsingamál
Ekki nóg að einhver nefnd fái upplýsingar
Það er ekkert annað en sjálfsagt að þeir sem eiga að borga brúsann, þ.e. almenningur í landinu, fái að sjá samninginn og vitanlega ætti að vera þjóðaratkvæðagreiðsla um hann.
Einhverjum finnst kannski að mér ætti að vera sama þar sem ég er hætt að taka þátt í íslenska efnahagsruglinu en synir mínir búa enn á Íslandi og mér finnst frekar súrt til þess að vita að börnin mín og hugsanleg barnabörn geti ekki búið á minni fósturjörð án þess að vera neydd til að borga sukk óviðkomandi skíthæla. Það er lágmark að þeir sem eru þvingaðir til að ábyrgjast skuldir annarra eftir á, fái að vita hvað það er sem annað fólk undirritar fyrir þeirra hönd.
![]() |
Ekki ríkisábyrgð á leynisamning |
Bein aðgerð
Þetta er dæmi um beina aðgerð.
Hér eru á ferð ungir menn sem bíða ekki eftir því að ríkisvaldið leiðrétti reglu sem þjónar engum tilgangi og býður upp á persónunjósnir, heldur grípa sjálfir til aðgerða sem valda andstæðingum þeirra óþægindum. Mér finnst það gott hjá þeim.
Húsráð
Sérstakur hópur manna ku vera að vinna að því hvernig hægt verði að opna þessi hlerunarmál úr kaldastríðinu, segir Geir.
Hvað um gamla góða húsráðið að hætta þessum hallærislegu undanbrögðum og finna „sérstökum hópi manna“ einhver þarfari verkefni? Af hverju þarf hóp manna til að finna einhverja sérstaka aðferð til að rétta fræðimönnum pappíra sem almenningur á fullan rétt á að fá að sjá?
Hafa menn annars nokkuð að fela?
