Í dag er ársfjórðungur síðan fréttist að bandamenn okkar í Nató hefðu drepið Hauk í tilefnislausri innrás Tyrkja í Sýrland. Andlát hans hefur ekki verið staðfest. Þessa fjóra mánuði þykist ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hafa verið að leita að honum samtímis því sem hún hefur lagt sig fram um að treysta vináttu og viðskiptasambönd við fasistaríkið Tyrkland. Þau fylgja leiðbeiningum tyrknesku lögreglunnar við leitina. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir merki: Tyrkland
Svar mitt við haturspóstum Tyrkja
Originally published in English
Kæru Erdoğandýrkendur sem hafið sent mér haturspósta
Haldið þið virkilega að ég sé svo grunnhyggin að drulluléleg samklippt mynd af íslenska fánanum með skítahaug geti komið mér í upnám? Sjáið til, það eruð þið vesalingar, sem tilbiðjið stjórnmálamenn og fána, ekki ég. Fyrir nokkrum áratugum var íslenski fáninn tákn sjálfstæðisbaráttunnar. Núorðið er hann aðeins tákn illkynja þjóðernishyggju og þeir sem helst hampa honum eru múslímahatarar, þar á meðal fyrirlitlegir rasistar sem ráðast á Tyrki fyrir það eitt að vera tyrkneskir. Fyrir alla muni drullið yfir íslenska fánann hvenær sem ykkur lystir. Ég mun gera það líka þegar ég verð uppskroppa með myndir af Erdoğan. Halda áfram að lesa