Hamborg – Brussel – Entebbe Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Allt efni
Rejsen til Uganda

Hamborg – Bruxelles – Entebbe Halda áfram að lesa
Göngutúr í rigningu

Var ég búin að segja ykkur hvað ég elska þennan bæ? Og ég sem er annars ekkert voðalega hrifin að stórum bæjum. Finnst ég bara vera sjúklega orkumikil hérna og verð bara meira og meira hrifin af þessum bæ því meira sem ég sé af honum.
Vika 3. Prumpað í baði

Vá hvað ég er ekki að standa mig í þessu bloggi. Hvernig fer fólk að því að finna sér tíma til að blogga? Svo hef ég svo mikið sem mig langar að blogga um að ég veit ekkert hvað ég á að byrja. Langar allavega ekkert að tala mikið um fitu og auka kíló. Halda áfram að lesa
2 vikur

70.6 sagði vigtin í gær, tveimur vikum eftir að ég var 74 kg. Það er ágætt finnst mér, miðað við mig. Ég er óttalega veikgeðja og á töluvert auðvelt með að telja mér trú um að það sé í lagi smá svindl. Þannig að ég svindla alltof oft og mikið og það bitnar á engum nema mér.
Vika!
Í gær var gleðidagur mikill! Komin vika á LKL og vigtin sýndi mér 71.6 kg sem þýða 2.4 kíló í tap. Hins vegar var ekki eins gleðlegt að Eikinn minn er búinn að bæta á sig kílói.
Dagur 3 og 4
Ég er komin með LKL þjálfara frá Íslandi 😊 Það má þegar maður er svo veikgeðja að maður er að falla á degi 3!
2 kg farin 😊 Frekar ánægð. Hef alveg svindlað smá og átti eiginlega ekki von á að vantaði einhver kíló.
Fyrsti dagur
Dagurinn í gær gekk ljómandi vel. Ég fann hreinlega hvernig lýsið sprændist af mér við hverja hreyfingu. Eftir kvöldgönguna okkar Lísu sagði Eiki að ég hefði greinlega grennst talsvert þar sem fötin voru farin að hanga utan á mér, ég ákvað bara að trúa honum. Halda áfram að lesa
Fitubollublogg
Ég veit ekki hvernig í andskotanum ég gat leyft þessu að fara svona langt, hélt í alvöru að ég væri týpan sem þyrft aldrei að fara í „megrun“ og mundi taka á svona málum áður en ég yrði alltof feit. Ég held líka að ég hafi ekki upplifað mig eins feita og ég í rauninni er, hélt bara að ég væri grennri. Eiginlega svipað og mér finnst ég ekkert hrukkótt, fyrr en ég lít í spegil. Halda áfram að lesa