
Vá hvað ég er ekki að standa mig í þessu bloggi. Hvernig fer fólk að því að finna sér tíma til að blogga? Svo hef ég svo mikið sem mig langar að blogga um að ég veit ekkert hvað ég á að byrja. Langar allavega ekkert að tala mikið um fitu og auka kíló. Halda áfram að lesa

Í gær var gleðidagur mikill! Komin vika á LKL og vigtin sýndi mér 71.6 kg sem þýða 2.4 kíló í tap. Hins vegar var ekki eins gleðlegt að Eikinn minn er búinn að bæta á sig kílói.
Ég er komin með LKL þjálfara frá Íslandi 😊 Það má þegar maður er svo veikgeðja að maður er að falla á degi 3!
Dagurinn í gær gekk ljómandi vel. Ég fann hreinlega hvernig lýsið sprændist af mér við hverja hreyfingu. Eftir kvöldgönguna okkar Lísu sagði Eiki að ég hefði greinlega grennst talsvert þar sem fötin voru farin að hanga utan á mér, ég ákvað bara að trúa honum.
Ég veit ekki hvernig í andskotanum ég gat leyft þessu að fara svona langt, hélt í alvöru að ég væri týpan sem þyrft aldrei að fara í „megrun“ og mundi taka á svona málum áður en ég yrði alltof feit. Ég held líka að ég hafi ekki upplifað mig eins feita og ég í rauninni er, hélt bara að ég væri grennri. Eiginlega svipað og mér finnst ég ekkert hrukkótt, fyrr en ég lít í spegil.