
Ertu að djóka hvað ég á erfitt með að einbeita mér. Ég hef tekið eftir því að ef ég vakna rosa snemma og sest fram áður en húsið vaknar, þá verður mér mest úr verki og það á við um allan daginn. Ef ég hins vegar, eins og í dag, vakna kl 10 og lufsast eitthvað áður en ég kem mér í sturtu, þá er næsta víst að ég mæti ólærð í skólan daginn eftir. Halda áfram að lesa




Í gær var gleðidagur mikill! Komin vika á LKL og vigtin sýndi mér 71.6 kg sem þýða 2.4 kíló í tap. Hins vegar var ekki eins gleðlegt að Eikinn minn er búinn að bæta á sig kílói.
Ég er komin með LKL þjálfara frá Íslandi 😊 Það má þegar maður er svo veikgeðja að maður er að falla á degi 3!