Veisla

Hún kunni illa við kirkjugarða. Hún óttaðist ekki anda hinna framliðnu og því síður taldi hún líkur á að hún raskaði grafarró þeirra. Ekki angraði hugmyndin um návist guðdómsins hana heldur enda taldi hún víst að sá hégómaspengill héldi sig fremur meðal þeirra sem ennþá væru í aðstöðu til að tilbiðja hann.

Það var miklu fremur útlit garðsins sem vakti óhug hennar. Henni fannst leiðin minna óhugnanlega mikið á brauðtertur og það var eitthvað svo ósmekklegt.

Reyndar komu greftrunarveislur illa við hana líka. Hún sá ekki ástæðu til að leggjast í þunglyndi þótt gamalmenni hrykki upp af en henni fannst samt óþarfi að fagna því. Þegar amma hennar dó, átu ættingjarnir kynstrin öll af brauðtertum í minningu hennar, þótt engum þeirra hefði nokkurntíma á þessum 82 árum sem hún lifði, dottið í hug að halda henni veislu. Sjálfsagt höfðu einhverjir erfingjanna hjálpað til við undirbúning sjötugsafmælis hennar en þar með voru upptaldar þær veislur sem höfðu verið haldnar henni til heiðurs í lifanda lífi. Og hér lágu nú bein hennar grafin undir risastórri brauðtertu, skreyttri með blómum sem gátu allt eins verið listilega sneiddir ávextir og tilklipptir steinseljusprotar.

Svo kom að því að maðurinn hennar dó og hún þurfti sjálf að undirbúa jarðarför – og veislu. Hún reiknaði með að eiga erindi í kirkjugarðinn oftar en áður og notaði tækifærið til að venja sjálfa sig af óbeit sinni á kirkjugörðum og greftunarkaffi. Hún hugsaði með sér að erfiveislur væru hluti af lífinu og það væru kirkjugarðar líka og að veislan væri táknræn athöfn. Ættingjarnir væru í raun að éta táknmyndir af leiðunum. Þeir væru ekki að éta mæjones og ávaxtaskreytingar í minningu hins látna, heldur væru þeir að éta minninguna sjálfa.

Hún skreytti terturnar sjálf. Bætti tilskorinni brauðbollu við skreytinguna á hverri köku, svo hún líktist legsteini, þræddi spergla upp á grillpinna og batt saman í kross og setti ofurlitla skál með sprittkerti fyrir neðan.

Viðbrögð ættingjanna voru ekki í samræmi við glæsileik veislunnar. Allir föðmuðu hana, vottuðu henni samúð sína, drukku kannski einn kaffibolla en snertu ekki á kræsingunum og flestir stoppuðu stutt.