Sjáið nú til. Nato er hernaðarbandalag vestrænna ríkja. Það er ekki kennt í grunnskólanum, en vestræn ríki, hinn svokallaði fyrsti heimur, eru gömlu nýlenduríkin. Ríkin sem rúðu restina af heiminum inn að skinni og viðhalda enn valdi sínu með efnahagslegu ofbeldi og ríkisreknum hernaði. Meira og minna allur hernaður og átök í heiminum í dag á rætur að rekja til nýlendustefnunnar sem aldrei dó í raun og er viðhaldið af vestrænum bandalögum, bæði óformlegum og formlegum. Þeirra stærst og hættulegast er NATO, og það bandalag verður að brjóta til grunna. Skref í áttina að því að gera það brottrækt af Íslandi og það verk munu stjórnmálamenn, sama hverjir þeir eru, ALDREI vinna.
Ráðstefnan hefur verið kynnt sem umræða um viðbrögð við hnattrænni hlýnun, sem á að verulegu leyti rætur sínar að rekja til stóriðju í þágu hergagnaframleiðslu. Það er þó engin von til þess að niðurstaðan verði sú að draga beri úr þeim iðanaði. Þegar upp er staðið er megintilgangur ráðstefnunnar sá að réttlæta áframhaldandi umsvif Nató á Íslandi og stækka Varnarmálastofnun, sem engin þörf ætti að vera fyrir hjá þjóð sem heldur frið við aðra.
Ég bendi þeim sem áhuga hafa á því að kynna sér kostnaðinn við samstarf okkar í gær á þennan hlekk.
Sex voru handteknir | |
—————————–
Ó mæ god. Nú skilur maður uppnámið..
hilmar jónsson, 29.1.2009 kl. 11:05