Snilldaraðgerð

sexworkJamm. Um að gera í bullandi atvinnuleysi að eyðileggja möguleika nektardansmeyja og annarra kvenna í kynlífsþjónustu, á því að hafa ofan í sig öðruvísi en í gegnum umboðsmann sem hefur sambönd við stórlaxa, smákrimma og aðra sem er sama hvaða lög gilda í landinu.Þessi löggjöf mun alveg fæla karla frá því að kaupa sér kynlífsþjónustu. En aðeins þá karla sem eru löghlýðnir og tillitssamir og þá sem leita í svona þjónustu vegna einmanaleika eða sérþarfa.  Óreglumenn og fautar munu hinsvegar glaðir borga einhverjum öðrum karli myndarlega upphæð sem færi í vasa stúlkunnar ef hún ætti einhverja möguleika á að útvega sér viðskiptavini sjálf. Feministar, þið eruð fávitar.

Klámgeiri(nn) á að sitja við sama borð og annar kapítalismi

klam

Mér finnst þetta fullkomlega sanngjörn krafa, þ.e.a.s. á meðan ríkið er tilbúið til að styrkja bæði umhverfisspillandi og orkufrekan iðnað og alls kyns kapítalískan hégóma. Ég sé ekki eðlismun á því að styrkja framleiðslu á myndum af konum að glenna á sér dýrðina og framleiðslu á t.d. snobbbílum. Best væri ef ríkið styrkti hvorugt en það er allavega sanngjarnt að allir skíthælar njóti jafnrar virðingar.

 

Leitið og þér munuð finna – allsstaðar

SexWorkerOrganizingIndia

Mér finnst það gott mál og virðingarvert að leita uppi kúgað fólk og hjálpa því. Og já, ég er alveg viss um að þrælahald viðgengst hér á landi sem annarsstaðar. Ég hef m.a.s. séð það sjálf. Að vísu ekki í vændisgeiranum heldur á veitingahúsi. Ég gerði tilraun til að klaga það en var sagt að þrælarnir yrðu að kvarta sjálfir til að hægt væri að gera eitthvað. Halda áfram að lesa →

Syndaregistur

fingurinnÞví betur sem ég kynnist heiminum, finnst mér trú og trúmenn vera stærra samfélagsvandamál. Á okkar frelsistímum er samt sem áður varla hægt að hreyfa sig án þess að Gvuð reki fokkjúputtann upp í rassgatið á manni. Heimsvaldastefnan byggir á trúhneigð almúgans og hinn langi fingur Gvuðs er ennþá, á Íslandi árið 2007 að pota í kynhegðun okkar.

Halda áfram að lesa →