Loksins, loksins! Siðvæðingin lifi!

Mikið lifandi skelfing er ég nú fegin því að dómarar skuli hafa fengið launahækkun. Það er svo gífurlegt álag á dómskerfinu á þessum síðustu og verstu tímum. Og full þörf á siðvæðingu enda glæpirnir iðulega hinir ógeðfelldustu.

T.d. þessi klámdrykkur. Gvuð má vita hversu margar nauðganir hafa átt sér stað í kjölfarið á neyslu þessa ósóma.

Við skulum líka athuga það ef drykkurinn væri til sölu hjá ÁTVR, væri ríkið þar með að stuðla að nauðgunum. Þangað kemur nefnilega margt fólk sem er nýskriðið yfir tvítugt til þess að kaupa sér löglegt fíkniefni sem gæti ýtt undir klámsýkina í því og eins gott að vera þá ekki að glenna þessar eggjandi síderdósir framan í það.

Nei, það gengur ekki að ríkið taki þátt í því að spilla æskunni með klámfengnum drykkjarföngum. Og gott til þess að hugsa að þrátt fyrir niðurskurð í heilbrigðiskerfinu og skerta þjónustu leikskóla, skuli Íslendingar samt bera gæfu til að verja fé til jafn brýnna þjóðþrifaverka og að reka slík mál fyrir dómstólum.

One thought on “Loksins, loksins! Siðvæðingin lifi!

  1.  
    ——————————-

    Ég vil fá klámdykki á hvers manns borð. Klám bætir hressir og kætir. Bætir meltinguna og gefur hraustlegt og gott útlit.

    Posted by: Brjánn Guðjónsson | 19.02.2011 | 16:51:28

Lokað er á athugasemdir.