Hófsamir ofbeldismenn

Ég legg það ekki að jöfnu að stjaka við konunni sinni á fylliríi og að drepa hana með keðjusög að vel ígrunduðu máli. En smávegis ofbeldi er nú samt ofbeldi og við vitum ekkert hvert mörk hófsamra ofbeldismanna geta teygst ef þeir verða nógu reiðir. Þessvegna myndi ég ekki gefa nokkrum manni fleiri en eitt tækifæri til að lemja mig. Jafnvel þótt hann hefði bara danglað aðeins í mig með borðtuskunni, tæki ég því sem hættumerki og færi, ekki viku síðar heldur sama dag.

Ég legg fasistatilhneigingar íslenskra yfirvalda heldur ekki að jöfnu við Mussolíni og ég viðurkenni fúslega að íslenskir lögregluþjónar eru upp til hópa fremur hófsamir ofbeldismenn. (Það voru áreiðanlega ekki mjög margir sem komu að meint sjálfsmorði í fangaklefa í júní 2009.)

En fasismi er samt fasismi. Jafnvel þótt það sé ósköp hófsamur fasismi sem birtist í heimildum til að njósna um fólk sem ekki liggur undir grun um refsiverðan verknað.

One thought on “Hófsamir ofbeldismenn

  1. ————————–

    Mundu að konur fremja líka ofbeldi eins og ég hef sjálufur þurft að reyna!

    Posted by: Trausti Traustason | 18.02.2011 | 9:50:57

    Vissulega fremja konur líka ofbeldisverk. æEg gæti m.a.s. best trúað því að heimilsofbeldi í lesbískum samböndum sé jafn algengt og í samböndum gangkynhneigðra. Held að ofbeldi velti meira á valdatengslum og líkamlegum yfirburðum en kyni.

    Posted by: Eva | 18.02.2011 | 10:00:32

Lokað er á athugasemdir.