Hjúkk

Sven er víst ekki tengdur AGS heldur Bergo.
Einhver skynsemisneisti hefur víst kviknað um síðir.

One thought on “Hjúkk

  1. ———————————–

    Ég er ánægð með að fá útlending í embættið til bráðabirgða.

    Við erum í augum heimsins algjörir fjárglæframenn og græðgisboltar, svo ósanngjarnt sem það kann að vera hvað áhrærir almeinning.

    Við þurfum að lappa upp á ásýnina hvort sem okkur líður betur er verr.

    Þessi er að minnsta kosti ekki í fokkings Sjálfstæðisflokknum og ég tek honum fagnandi.

    Jenný Anna Baldursdóttir, 27.2.2009 kl. 10:25

    ———————————–

    Lítur bara nokkuð virðulega út.

    Finnur Bárðarson, 27.2.2009 kl. 10:34

    ———————————–

    Undanfari upptöku norks gjaldmiðils ?

    hilmar jónsson, 27.2.2009 kl. 10:54

    ———————————–

    Fínt að fá útlending já. Ef það væri ekki stjórnarskrárbrot. Það er svosem alveg tímabært að endurskoða stjórnarskrána en það er lítið gagn í því að hafa stjórnarskrá ef stjórnvöld fara ekki eftir henni.

    Eva Hauksdóttir, 27.2.2009 kl. 12:41

    ———————————–

    Það mun víst vera munur á hvort menn eru settir eða ráðnir. Hann var settur. Svo þetta er ekki stjórnarskrárbrot.

    Finnur Bárðarson, 27.2.2009 kl. 12:56

    ———————————–

    Jæja, það er nú gott ef það er á hreinu.

    Eva Hauksdóttir, 27.2.2009 kl. 13:12

    ———————————–

    Það er illa komið fyrir einni þjóð þegar leita þarf út fyrir landsteinana til að finna Seðlabankastjóra sem á engan hátt er hægt að tengja við fjárglæfra og svikamilluna sem riðið hefur hér fjöllum allt of lengi og við fengum í hausinn í haust .  Enn hvað var annað hægt , landið og þjóðin trausti rúinn erlendis og íslendingar í augum útlendinga óreiðufólk og svikahrappar sem ekki er mark takandi á þegar peningar eru annarsvegar . Og þjóðin getur sjálfri sér um kennt eftir að hafa kosið ítrekað til alþingis gjörspillt fólk sem sá ekki skóinn fyrir trjánum.

    Jon Mag (IP-tala skráð) 27.2.2009 kl. 13:18

    Jon Mag: Það er illa komið fyrir þessari þjóð.

    hilmar jónsson, 27.2.2009 kl. 13:28

Lokað er á athugasemdir.