Hagfræði fyrir heimskingja …

… óskast.

Mér skilst að ástæðan fyrir því að það kostar orðið meira en 6000 kr að fylla bílinn minn sé takmarkað framboð á eldsneyti. Ég skil og brosi en finn hrottalega fyrir hækkuninni, svo ég hreyfi bílinn minna (ég er sek, ég tek fjárútlát meira nærri mér en umhverfismengun), því ekki brýtur maður lögmál. Á sama tíma er offramboð á húsnæði. Samt hefur fasteignaverð ekki lækkað svo mikið að neinn finni fyrir því og ekki leiguverð heldur. Hvað varð um lögmálið um framboð og eftirspurn?

One thought on “Hagfræði fyrir heimskingja …

  1. —————–

    Verð á fasteignum hefur lækkað verulega en ekki opinberlega. Þetta ágæta lögmál virkar bara fínt:)

    Posted by: Guðjón Viðar | 11.06.2008 | 14:35:44

Lokað er á athugasemdir.