Rannsóknir hafa löngum sýnt að framsóknarmennska er einhver skæðasti samfélagssjúkdómur sem herjar á Íslendinga í dag. En nú hafa framsóknarmenn fundið lausn á vandanum. „Vandi framsóknarflokksins felst aðallega í því að þótt Framsóknarflokkurinn sé viti skynsemi og rökhyggju erum við framsóknarmenn upp til hópa fullir af skít. Þessvegna á Jónína erindi við flokkinn“ sagði heimildamaður Pistilsins.
Afurðir hreinsunarinnar munu eflaust gagnast framsóknarmönnum vel í pólitísku skítkasti en heimildamaðurinn sagðist einmitt telja að næsta kosningabarátta yrði sannkallaður hægðaleikur fyrir Framsóknarflokkinn.