Ég hef oft verið spurð að því, bæði af körlum og konum, hversu mikil áhrif fjárhagsstaða karlmanns hafi á líkurnar á því að ég verði hrifin af honum. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Sápuópera
Glimrandi
Minningartónleikarnir um Vilhjálm Vilhjálmsson fóru langt fram úr væntingum.
Borghildur var virkilega í skýjunum, hafði alls ekki búist við neinu merkilegu, og þar sem hún er 6 árum yngri en ég hefur hún líklega ekki gert sér neina grein fyrir því hversu mörg dásamlega lög Vilhjálmur gerði vinsæl. Eða gerðu hann vinsælan, sem er allt eins líklegt.
Hafi ég nokkurntíma verið í vafa um að Stebbi Hilmars hefði átt að fara í klassískt söngnám þá eyddu þessir tónleikar þeim efasemdum að fullu.
Já og ég hef víst alveg gleymt að hæla Snorra Hergli fyrir standöppið á miðvikudaginn. Það var bráskemmtilegt. Ég held að mín innri menningarspíra sé að koma til eftir langan vetur. Ég hef ekkert farið í leikhús eða yfirhöfuð gert neitt fyrir sálina í mér í marga mánuði. Ekki fyrir hárið á mér heldur en nú er helvítið hann mars næstum búinn.
Vantar gjafahugmynd
Ég þarf bráðum að finna gjöf, helst táknræna. Hvað gefur maður þeim sem iðulega er með nefið ofan í hvers manns koppi en hefur þó aldrei fundið skítalyktina heima hjá sér?
Fling
Kurteisishjal höfðar ekki sérstaklega til mín og eftir stutt spjall um daginn, veginn og verðlagið, spurði ég hreint út:
-Og einhver ást í spilinu?
-Ég er ennþá með sama flingið og síðast, svaraði hann.
-Áttu við þessa sem kom með þér hingað fyrir jólin? spurði ég og jú þaðvar víst sú sama. Halda áfram að lesa
Hákarl
Markmið, markmið, heimurinn æpir markmið. Það er töfrabragð nútímans. Ef þú veist ekki hvert þú ætlar, þá kemstu ekki þangað. Ef þú vilt ekkert, þá færðu ekkert. Ef þú hefur ekki framtíðarplan mun nokkuð hræðilegt henda þig -nefnilega ekkert! Halda áfram að lesa
Ókunnug kona hefur skráð þig sem vin
Á þessum árum frá því að ég uppgötvaði vefbókina, hef ég eignast nokkra bloggkunningja. Slík sambönd verða til á svipaðan hátt og önnur kunningjasambönd. Ég sé áhugavert komment frá Siggu á blogginu hans Jóa, les bloggið hennar Siggu og svara færslu frá henni, set kannski tengil á hana á mitt blogg, hún fer að lesa mína vefbók og einn daginn er kominn tengill á mig á bloggið hennar. Tengsl hafa myndast. Stundum slitna þau strax, stundum styrkjast þau. Halda áfram að lesa
Klipp
Ég þarf að fara til háraðgerðafræðings. Hef ekki farið í klippingu í 8-9 mánuði og ég er með hár sem er álíka gróft og kóngulóarvefur og slitnar hraðar en það vex. Höfuðgæran á mér á semsé lítt slikt við heilbrigði og silkiglans þessa dagana. Hlynur er hættur og ég er nánast í sorg yfir því. Mér finnst miklu verra að láta ókunnugt fólk vesenast í hárinu á mér en að fara í krabbameinsskoðun.