Þessar hugleiðingar birti ég á blogginu mínu 12. september 2003 Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Liljur vallarins (dagbók)
Staðan í máli Hauks
Fjölskylda og vinir Hauks hafa unnið ötullega að því að afla upplýsinga um afdrif hans. Fjölmargir hafa aðstoðað við upplýsingaöflun og þýðingar og ennþá fleiri hafa boðið fram aðstoð sína. Við erum innilega þakklát. Halda áfram að lesa
Engar fréttir
Ég vildi að ég gæti sagt ykkur hvað gerðist hann 24. febrúar en ég veit bara ekkert meira en það sem hefur komið fram í fjölmiðlum. Það lítur út fyrir að hann Haukur minn sé látinn. Hvorki ég né nokkur annar af nánustu aðstandendum fékk neina tilkynningu og ég hef enn ekki náð sambandi við neinn sem veit meira en það sem komið hefur fram opinberlega. Margir hafa lýst undrun sinni á því að fréttinni hafi verið dreift á samfélagsmiðlum án þess að við værum látin vita en kommon, það er ekki við því að búast að nokkrum detti í hug að samtök setji slíka frétt á netið, 10 dögum eftir atburðinn, án þess að hafa samband við fjölskylduna. Halda áfram að lesa
Rauð viðvörun
Það snjóar í Glasgow. Þetta er í fyrsta sinn á þessum 6 árum sem ég hef búið hér sem snjó festir lengur en sólarhring. Í gærmorgun var logn og jafnfallinn snjór, varla meira en 5 cm. Ég fékk þessa tilkynningu í pósthólfið „Please note that due to severe weather the University is closed today“. Halda áfram að lesa
Öryggisráðstafanir
Myndin er klippt úr þessu myndbandi
– Góðan dag, er ég að tala við Evu Hauksdóttur?
– Já
– Ég er að hringja frá Vodafone vegna … símtalið gæti verið tekið upp …
– Allt í lagi.
– Geturðu gefið mér fullt nafn.
– Ehh… Eva Hauksdóttir, alveg eins og þú giskaðir á. Halda áfram að lesa
Læst: Dagar með Eldi og Tóta
„Ég átti ekki við þig“ (Liljur vallarins)
Efst á baugi
Lestin renndi að og kona sem hafði greinilega gengið hraðar en henni þótti þægilegt kom niður á brautarpallinn í sömu andrá. „Ég er fegin að ég náði lestinni, það er svo langt á milli ferða á kvöldin“ sagði hún um leið og við stigum inn í vagninn. „Annars á maður ekki að kvarta yfir Scotrail, ég bjó í London í tvö ár og lestarkerfið þar er hræðilegt. Það er ekki mikið um seinkanir hér og lestirnar eru hreinar og þægileg sæti“ hélt hún áfram. Hún settist á móti mér og var greinilega í stuði til að spjalla. Ég tók undir ánægju hennar með Scotrail, sagðist ekki spennt fyrir því að aka í vinstri umferð. Halda áfram að lesa