Ég hefði seint trúað því að ég ætti eftir að eiga frumkvæði að því að fara í fjallgöngu en mér ofbauð svo úthaldsleysi mitt um síðustu helgi að ég ákvað að við þetta yrði ekki unað öllu lengur svo ég stakk upp á því að fara á Esjuna í dag. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Allt efni
Blogggáttin 2017
Ég var að skrá norn.is á Blogggáttina en ég hef ekki fylgst með henni í mörg ár. Listinn yfir mest lesnu blogg ársins hefur ekki verið uppfærður frá 2011. Mér sýnist reyndar að stórir netmiðlar sem hafa auglýsingatekjur, og eru uppfærðir oft á dag, hafi nánast yfirtekið Bloggáttina. Þeir sem halda úti sínum eigin lénum eru lítt sýnilegir og bloggarar sem birta skrif sín á bloggsvæðum stóru miðlanna eru í þeirri undarlegu stöðu að keppa um athyglina við miðlana sem þeir skrifa fyrir, frítt. Halda áfram að lesa
Gættu að því hvenær þú veikist maður!
Ég er svo lánsöm að eiga lögheimili erlendis og þarf því aldrei að hafa áhyggjur af kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu. Hef því ekki haft neina praktíska ástæðu til að kynna mér nýja greiðsluþátttökukerfið vegna heilbrigðisþjónustu sem tók gildi núna 1. maí. Ég hélt jafnvel að það væri notendum til mikilla hagsbóta því kona sem ég þekki og hefur átt við mikil veikindi að stríða síðustu árin sagði mér að hún hefði farið til læknis í júní og ekki þurft að greiða nema brot af því sem hún hafði greitt síðast. Halda áfram að lesa
Lúxuskrísa
Ég verð að fara að taka ákvörðun um það hvað ég ætla að gera í vetur. Mig langar nákvæmlega ekkert að taka meistaranám í HÍ, þar er sama ömurlega krossaprófastefnan og í grunnnáminu og gert ráð fyrir 5 námskeiðum á önn. FIMM námskeiðum. Mér hrýs hugur við því. Maður á semsagt að halda áfram að krafsa í yfirborðið á öllu. Læra þúsundir blaðsíðna utan að og reyna að komast hjá því að hugsa sjálfstætt. Engin sérhæfing og sárafá tækifæri til að kafa djúpt í efnið. Ég gubba. Halda áfram að lesa
Skriðnahellir
Hér eru tvö myndbönd frá Skriðnahelli sem var grafinn upp fyrir nokkrum árum. Þangað kom pabbi ungur að árum, löngu áður en opið fylltist af aur og eðju.
Allt meinhægt
Sumarið hefur verið ósköp ágætt. Ekkert stórkostlega spennandi að gerast en heldur ekki undan neinu að kvarta. Vorum í Hrísey í 3 vikur og mér tókst að móðga Hríseyjarvini, án þess að leggja nokkuð sérstakt á mig til þess. Halda áfram að lesa
Úrtölur
Eva: Hey, ég er alvöru lögfræðingur og ég er að vinna á alvöru lögmannsstofu. Er ég þá ekki bara þrælheppin?
Birta: Djííísús! Halda áfram að lesa