Nýverið sagði Brynjar Níelsson í útvarpsviðtali á Harmageddon að hinar skapandi greinar dældu peningum úr ríkissjóði. Það er ekki alveg rétt. Eins og spyrillinn benti honum á er hægt að reikna það út og niðurstaðan er sú að skapandi greinar velta jafn miklu og álframleiðsla. Nokkrum dögum síðar bárust svo fréttir af því að gestir Eve Fanfest hefðu skilið 400 milljónir eftir í landinu. Einn atburður sannar auðvitað ekkert en þessi skýrsla gefur vísbendingu um að Brynjar ætti að endurskoða þá hugmynd sína að skapandi greinar séu afæta á ríkissjóði. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Allt efni
Að stela deginum
Fyrsti maí er ekki baráttudagur verkalýðsins. Frídagur kannski en ekki baráttudagur. Eins og bent hefur verið á er það ekki verkalýðurinn heldur hernaðarandstæðingar, umhverfissinnar, vinir Palestínu og feministar sem ganga 1. maí. Halda áfram að lesa
Öll þessi litbrigði grámans
Síðasta haust ætlaði ég að kaupa mér nýjan kjól fyrir veturinn. Það var reyndar ekki nóg fyrir mig að fá nýjan kjól, ég vildi hlýjan vetrarkjól með löngum ermum. Ég fór í margar búðir en satt að segja mátaði ég ekki marga kjóla. Ekki af því að það væri neinn skortur á kjólum, heldur af því að hlýju kjólarnir voru allir gráir og grár er bara ekki minn litur. Halda áfram að lesa
Ingó
Ef þú fengir fimm ár í viðbót við fulla heilsu, hvernig myndirðu nota þau? spurði ég. Ingó yppti öxlum. Ég myndi bara gera það sama og hingað til, sagði hann. Vera meira með fjölskyldunni. Taka myndir. Spila. Keyra mótorhjól. Vinna öll þessi verkefni sem ég hef talað um með þér og fleiri vinum. Og ferðast, ég væri virkilega til í að fá tækifæri til að ferðast meira. Já einmitt, bara meira af því sama. Þetta er gott líf. Halda áfram að lesa
Heilræðavísa
Ef þig svíkur andans kraftur
ekki hætta, reyndu aftur.
Hugurinn ber þig hálfa leið
hitt er nám og vinna,
þér yrði eflaust gatan greið
ef gætirðu kvartað minna.
Að syrgja með reisn
Ég fann myndina á netinu, veit ekki hver tók hana
Birtan í mér stígur fram. Eigi skal gráta, heldur safna liði og hefna, hvæsir hún upp í rauðflekkótt andlitið á mér. Já væri það nú bara í boði. En við erum ekki að tala um neinn venjulegan morðingja heldur sýkópatafrumu. Krabba. Eina markmið hans er að drepa, jafnvel þótt hann drepi sjálfan sig í leiðinni. Maður ætti ekki að sýna þann veikleika gagnvart slíkum viðbjóði að grenja, heldur gera eitthvað í málinu. Eða allavega syrgja með reisn. Halda áfram að lesa
Betl
Það er áreiðanlega erfið vinna að vera betlari. Sitja aðgerðalaus tímunum saman. Augnaráð vegfarenda lýsa vorkunnsemi og þó oftar fyrirlitningu, þ.e.a.s. augnaráð þeirra sem á annað borð líta í átt til betlarans því flestir forðast að horfa á eymdina. Og oftast lítið upp úr því að hafa. Halda áfram að lesa