Góðir hlutir gerast hægt.
Frábærir hlutir gerast hinsvegar í hvelli. Halda áfram að lesa
Greinasafn eftir:
20 fermetrar
Ég skil son minn hinn mannfælnari svosem vel að vilja vera út af fyrir sig. Ég vil fá hann út til Danmerkur en ég skil svosem hans rök fyrir að vilja það ekki. Ég skil hinsvegar ekki í öðrum eins ruslasafnara að vera tilbúinn til að greiða morð og milljón fyrir afnot af húsnæði sem er á stærð við fataskáp. Halda áfram að lesa
Myndir frá Ingó
Bara eitt vandamál óleyst
Jæja, allt tekur þrisvar sinnum lengri tíma en maður reiknar með í upphafi en loksins sé ég fram á að bókin okkar verði útgáfuhæf, ekki seinna en um næstu mánaðamót.
Stóra vandamálið í augnablikinu er að snillingurinn og dugnaðarforkurinn hann Ingólfur er ósammála mér um úgáfuformið. Mér hefur þótt einstaklega gaman að vinna með Ingó. Hann skilur mig nógu vel til að velja svipbrigði og sjónarhorn sem ríma algerlega við andblæinn í textanum og það hefur engan skugga borið á okkar samstarf. Vandamálið er hinsvegar að honum finnst það ’öfgakennd’ hugmynd að pappírsnotkun sé í eðli sínu ofbeldi gegn trjám, og heldur fast við þá hugmynd að gefa hana út á pappír, þótt rafbók sé augljóslega hagkvæmari og umhverfisvænni kostur. Halda áfram að lesa
Forsíðumyndin
Ljúflingur
Allt komið á flug
Góðir hlutir gerast hægt. Frábærir hlutir gerast hinsvegar í hvelli. Þegar ég kom til Íslands þann 7. janúar var textinn nokkurn veginn klár, teikningarnar af Birtu og líklega 8-10 myndir. Hinsvegar var öll uppsetning eftir. Við kláruðum hana á 4 dögum og nú eigum við bara eftir að ganga frá nokkrum endum, setja inn barnæskumyndir og lesa próförk.
Ef okkur gengur jafn vel með kynningarmyndskeiðin, þá ætti bókin að vera orðin útgáfuhæf um mánaðamótin.