Hreyfingin BÚS; Björn úr stjórnmálum, mun vinna ötullega að því að koma Birni Bjarnasyni úr íslenskri pólitík, a.m.k. úr aðstöðu til að hafa áhrif á opinberum vettvangi. Allar hugmyndir um aðgerðir sem geta stuðlað að þessu marki eru vel þegnar en þó með þeim takmörkunum að engin skepna, hvorki mennsk né ómennsk þurfi að óttast líkamstjón af völdum aðgerða.
Staður og stund stofnfundar verður auglýst síðar en áhugasömum er bent á að senda tölvupóst á netfangið eva@nornabudin.is
Ég hef ekki verið dugleg að fylgjast með fréttum að heiman undanfarið. Ástæðurnar eru stopulll aðgangur að nettengdri tölvu, langir og erfiðir vinnudagar og takmarkaður áhugi á fjármálafréttum.
Ég er þó farin að velta því fyrir mér hvort ég sé kannski full skeytingarlaus. Fólk er stöðugt að votta mér samúð sína. Strákur frá Kaliforniu spurði mig hvort Norðmenn myndu ekki bara yfirtaka landid ‘aftur’. Margir virðast telja að hungursneyð blasi við Íslendingum. Netmogginn talar um landflótta til Færeyja af öllum stöðum.
Er þetta ekki bara sami hófsemdarkvíðinn og venjulega grípur Íslendinga þegar við sjáum fram á að einhverjir ímyndunarríkisbubbar neyðist til að horfast í augu við að eign er ekki eign ef maður skuldar 150% í henni og þarf því að losa sig við einn jeppa eða svo?
Hvað segja menn? Er þetta í alvöru ‘ástand’ eða eru fjölmiðlar í dramakasti? Væri kannski bara skynsamlegast að biðja Norðmenn að passa bankana okkar?