Aldrei þessu vant er ég sammála Geir

Líklega er búið að ákveða að álver rísi á Bakka, hvort sem náttúran þolir það eða ekki. Sú ákvörðun verður keyrð í gegn, hvað sem öllu umhverfismati líður. Það er því rökrétt hjá Geir að líta á umhverfismat sem óþarfa.

Aldrei þessu vant er ég sammála honum. Það þjónar ekki tilgangi að leggja í kostnað við mat á umhverfisáhrifum sem allir vita að eru bæði óviðunandi og óafturkræf. Ég virði Þórunni fyrir viðleitni hennar til að tefja málið en það eina sem mun skila árangri er að almenningur rísi upp gegn þessu stóriðjubrjálæði og steypi Geir og ríkisstjórn hans af stóli.

 

mbl.is Úrskurðurinn ónauðsynlegur

One thought on “Aldrei þessu vant er ég sammála Geir

  1. —————————

    Megi ríkisstjórn Samfó og Íhaldsins falla og stóriðjustefnan með.

    Bestu kveðjur

    Jón Þórarinsson

    Jón Þórarinsson (IP-tala skráð) 2.8.2008 kl. 18:22

Lokað er á athugasemdir.