Ný ferilsskrá

Ég hef verið í atvinnuleit á Íslandi undanfarið og hef fengið staðfestingu á því að menntun mín, starfsreynsla og hæfileikar skipta ekki minnsta máli. Ég á því allt eins von á því að þurfa að segja mig til sveitar.

Nú skilst mér að hreppsómögum sé gert að sækja um þau störf sem bjóðast, sem í mínu tilviki eru þá væntanlega þrif og aðhlynning á elliheimilum. Ég hef aldrei talið það fyrir neðan mína virðingu að skúra og skeina en þar sem ég tel þjóðarhag betur borgið með því að hafa mig á lyklaborði en moppu, ætla ég ekki að leggja mig sérstaklega fram um að fá slíkt starf.

Þar sem enginn atvinnurekandi hefur sýnt áhuga á ferilsskrá minni hingað til, hlýtur að vera eitthvað að henni. Því ekki getur verið að eitthvað sé að atvinnurekendum. Ég er því búin að endurskrifa ferilsskrána og taka út úr henni allt nám, vinnu og aðra reynslu og hæfileika sem gætu gagnast mér á vinnumarkaði. Ef hún hjálpar mér ekki til að fá starf sem hentar mér, þá mun hún allavega hjálpa mér að fá ekki eitthvað sem ég vil ekki.

Ferilsskrá

1978
Andfélagsleg undirskriftasöfnun
Ég byrjaði ung að rífa kjaft. 12 ára að aldri stóð ég fyrir minni fyrstu undirskriftasöfnun. Ég var þá í heimavistarskóla og eitthvað hafði borið á því að peningar og sælgæti hyrfi úr herbergjum nemenda. Ég fór fram á að í herbergin yrðu settar hirslur sem hægt væri að læsa og fékk hluta nemenda til að skrifa undir bréfið. Fáir tóku þátt og náði hneykslun manna yfir þessu freklega uppátæki til fjögurra hreppa. Aðgerðin heppnaðist ekki.

1979
Neitaði að fermast
Ítrekaðar tilraunir prestins til að tala um fyrir mér báru engan árangur og spurðist andfélagsleg hegðun mín víða um sveitir.

1983
Reif kjaft opinberlega í fyrsta sinn
Um var að ræða andfélagslegt lesendabréf þar sem ég ásakaði þáverandi skólastjóra Þelamerkurskóla um valdníðslu gagnvart tveimur kennurum skólans.

1984
Ritdeila við þjóðernirssinna
Háði ritdeilu við kynþáttahatarann Magnús í Vatnsnesi í Velvakanda Morgunblaðsins.

1985-2000
Næstu 15 gerðist fátt markvert í lífi mínu. Ég vann ýmis misskemmtileg störf, ól upp börn, lauk háskólanámi, tók þátt í félagsstarfi stúdenta og snuddaði utan í herstöðvarandstæðinga og Ísland Palestínu, stofnaði í félagi við nokkur önnur skúffuskáld “samband íslenskra ljóðskálda og tók þátt í nokkrum fjöllistauppákomum, vann, lauk meira háskólanámi, skrifaði ýmislegt sem enginn hafði áhuga á og vann meira. Tók virkan þátt í starfi leikfélags Fljótsdalshéraðs og átti sæti á lista félagshyggjufólks sem bauð fram til sveitastjórnakosninga 1998, við skíttöpuðum.

Á þessum árum tókst mér þó eitt með ágætum; ég ól upp tvo drengi sem voru foreldrum sínum og kennurum hlýðin börn en urðu síðar yfirvöldum óhlýðnir. Tel ég þetta mesta afrek mitt í lífinu, alla vega fram að þessu.

2001
Afglöp í starfi fangavarðar
Fram til ársins 2006 var ég hættulega nálægt því að teljast meðalgreindur smáborgari. Þó tókst mér að klúðra möguleikum mínum á því að fá nokkurntíma vinnu við öryggisgæslu eða annað þvíumlíkt árið 2000, þegar ég fékk sumarvinnu sem fangavörður á Litla Hrauni. Þótti ég sýna afar óviðeigandi hegðun í starfi þar sem ég neitaði að undirrita upplognar skýrslur og hylma yfir með fangavörðum sem fóru offari í starfi. Mestum hæðum náði þó andfélagsleg hegðun mín þegar ég hóf sambúð með einum fanganna sem útskrifaðist nokkrum mánuðum eftir að ég hætti störfum.

2002
Flokkspólitísk þátttaka
Tók annað sæti á lista VG fyrir sveitastjórnarkosningarnar í Árborg. Við töpuðum með stæl.

2002
Andfélagsleg vefbók
Árið 2002 byrjaði ég að halda úti vefbók. Bloggaði fyrst á Annál, vef guðfræðinema en gekk þar í lið með trúleysingjum og móðgaði margan prestinn.

2001- 2003
Skáldaórar
Á þessu tímabiligerði ég tilraun til að fá útgefið smásagnasafn mitt
-Úlfurinn og barnið, einnig ljóðabækurnar;
-…og veröldin lyktar af ösp
-Reyr mínar rætur
-Andlit barns
-Rykið hefur gert sér hreiður undir rúmi mínu og
-Bláþræðir –dagbók vændiskonu

Ekki báru þær tilraunir nokkurn árangur og náði hneysuför mín hámarki þegar ég fékk þá umsögn frá bókaútgáfunni Eddu að þrátt fyrir snjallar myndlíkingar, gott vald á bragarháttum og óvenjuleg efnistök, gæti yrkisefnið seint talist ljóðrænt en þema þeirrar bókar var kynlífsiðnaðurinn í Reykjavík.

Einnig skrifaði ég mikinn fjölda kvæða við tónlist Óttars Hrafns Óttarssonar. Aldrei hefur neitt af því verið gefið út.

2004
Get mér orðspor sem algjör dræsa
2003 opnaði ég persónulega dagbók sem ég kallaði reykvíska sápuóperu. Var dagbók þessi klámfengin mjög og endaði inni á borði hjá Þvaglegg sýslumanni þegar barnsmóðir þáverandi sambýlismanns míns lagði hana fram til sönnunar því að barnsfaðir hennar byggi með druslu.

2004
Fugl í grænum heimi
Gaf út ljóðabókina “Fugl í grænum heimi” sem fáir keyptu og enginn las. Ég á enn nokkra tugi eintaka af henni.

Leikfimi
Skrifaði í félagi við Björn M. Sigurjónsson söngleikinn Leikfimi. Ég orti alla söngtextana 16 talsins en hann átti heiðurinn af söguþræðinum og tónlistinni. Ekki hafði nokkur leikstjóri áhuga á að setja söngleikinn upp.

2005
Nornabúðin opnuð
Árin áður hafði ég unnið ýmis störf, mest við kennslu, textavinnu og fréttamennsku en líkaði illa að þurfa að lúta stjórn annarra. Þetta sumar ákvað ég að hagnýta fordæðuskap minn og opnaði Nornabúðina á Vesturgötu og hófst nú blómaskeið illsku minnar.

2007

Módel fyrir Spencer Tunick
Ég hef í gegnum tíðina setið fyrir hjá ýmsum ömurlegum og alls óþekktum listamönnum, bæði málurum og ljósmyndurum. Þetta sumar reis þó hróður minn ögn hærra þegar ljósmyndarinn Spencer Tunick kom til Íslands. Flest verk Tunick sýna mikinn fjölda nakinna skrokka en á Íslandi tók hann myndir að 1-3 fyrirsætum í einu. Ekki hef ég hugmynd um hvort hann hefur nokkurntíma notað þessa mynd en hún sannfærði mig allavega um að rassinn á mér væri ekki eins fallegur á hvolfi og maður hefði haldið að óreyndu.

Handtekin fyrir mótmælaaðgerð
Í júlí 2007 var ég handtekin fyrir þátttöku mína í mótmælum Saving Iceland, síðar dæmd fyrir óhlýðni við lögreglu.

Miriam Rose
Sumarið 2007 stýrði ég baráttunni gegn brottvísun breska jarðfræðingsins og umhverfisaktivistans Miriam Rose sem stóð til að vísa úr landi vegna aðgerða sinna á vegum Saving Iceland. Við unnum.

Svartigaldur og opinber flenging á Austurvelli
Í nóvember þetta ár framdi ég í fyrsta sinn galdur á opinberum vettvangi. Það var vættaseiður, til þess ætlaður að kalla bölvun yfir stóriðjustefnuna. Lét ég reisa Alþingi níðstöng og fékk til liðs við mig tákngerving alþýðukonunnar sem rassskellti brúðu, táknmynd þeirra þingmanna sem samþykktu Kárahnjúkavirkjun. Að því loknu gól ég seiðinn og var fjölmenni viðstatt athöfnina.

Árangurinn af galdrinum varð ekki eins góður og ég vonaði en sá hluti hans sem laut að því að afhjúpa talsmenn stóriðjustefnunnar og kalla gjaldþrot yfir kapítalískt hagkerfi, kom fram í hroðalegasta efnahagshruni Íslandssögunnar.

http://www.norn.is/sapuopera/2007/11/nistoengin_stendur_enn.html
http://www.norn.is/sapuopera/2006/09/hvatningarseiur_til_natturuvtt.html

2006-2008
Dólgsskrif á netinu
Á árunum 2005-2008 varð ég þekkt sem bloggari, aðgerðasinni og norn. Ég skrifaði fjölda pistla um samfélagsmál, einkum þó áróður gegn stóriðju og umhverfisspjöllum, mannréttindabrotum og öðrum einkennum kapítalismans. Einnig tókst mér að móðga ýmsa samfélagshópa, svo sem þjóðkirkjufólk, vantrúarmenn, spiritista, sauðfjárbændur, jeppaeigendur, feminista, feitabollur og AA samtökin.

Vefbókarskrif mín um umhverfismál og þátttaka í netumræðum varð sífellt dólgslegri og hringdi inn nýtt skeið í sögu mótmælaaðgerða á Íslandi. Náðu þessi skrif hámarki með kvæðinu Sálmur handa Sóma http://www.norn.is/sapuopera/2007/07/kvi_handa_soma.html sumarið 2007 en þá ég náði jafnvel að ganga fram af anarkistum og er þetta í eina skiptið sem ég hef tekið færslu úr birtingu fyrir orð annarra en ættingjar mínir óttuðust að ég myndi kalla ofsóknir yfir fjölskylduna með þessum skrifum.
2008
Paul Ramses
Tók þátt í björgunaraðgerð og mótmælum vegna flóttamannsins Pauls Ramses, auk þess að skrifa fjölda greina um málið og eyða ómældum tíma í undirskriftasöfnun. Haukur sonur minn og James Slade eru enn fyrir dómi vegna málsins.

Í kjölfar aðgerðarinnar fór ég við fimmta mann og heimsótti flóttamannafangelsið að Fitjum, þar sem ég hvatti flóttamenn til ólöglegra aðgerða og ráðlagði þeim að barna íslenskar druslur til að auka möguleika sína á því að fá hæli á Íslandi. Hef síðan hýst flóttamenn og stutt hreyfinguna No Borders með því að auglýsa aðgerðir þeirra og skrifa um málefni flóttamanna.

Sjálfboðastarf í Palestínu
Í september og október 2008 var ég við sjálfboðastarf í Palestínu með aktivistahreyfingunni ISM sem Ísraelsmenn skilgreina sem hryðjuverkasamtök. Ég skrifaði dagbók og vann síðar upp úr henni ferðasöguna Tell your President, sem enginn bókaútgefandi hefur minnsta áhuga á, enda fjallar sagan öðrum þræði um mannréttindabaráttu.

Innbrot á lögreglustöð
Í nóvember 2008 sætti sonur minn Haukur, ólögmætri handtöku. Efndi ég til mótmæla við lögreglustöðina á Hverfisgötu og enduðu þau mótmæli með því æstur skríllinn braut sér leið inn á lögreglustöðina og piparúða var beitt til að hrekja lýðinn út. Ég endaði ásamt ungri stúlku uppi á slysadeild en Haukur var látinn laus. Hann vann síðar skaðabótamál gagnvart lögreglunni.

Vargastefna
Þann 1.desember 2008 framdi ég svartagaldur á lóð Stjórnarráðsins. Stefndi ég varg að ríkisstjórn Geirs Haarde með þeim árangri að hún féll nokkrum mánuðum síðar eftir skæðustu og lengstu róstur Íslandssögunnar.
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2008/12/01/vargastefna_vid_stjornarrad/
http://www.norn.is/sapuopera/2008/11/vargastefna.html
http://www.norn.is/sapuopera/2009/11/vargastefna_sem_eg_flutti_vi_s.html

Seðlabankastjóri rassskelltur
Síðar þennan sama dag gekk ég á fund Davíðs Oddssonar þásitjandi seðlabankastjóra og skoraði á hann að segja af sér. Beitti ég göldrum til þess að fá lögregluna til að koma mér inn í bankann en Davíð hafði þá vikum saman neitað fjölmiðlum um viðtal. Eigi varð hann við vinsamlegum tilmælum mínum og neyddist ég því til að beita andlegu ofbeldi. Bar ég hann út úr bankanum í líki brúðu sem ég rassskellti fyrir framan byggingu seðlabankans og fleygði svo fyrir æstan múginn sem hreinlega reif hana í sundur. Varð árangurinn af galdri þessum sá að allir þrír bankastjórar seðlabankans voru reknir og pólitískum ferli Davíðs Oddsonar lauk með skömm.

2008-2009
Búsáhaldabyltingin
Á tímabilinu desember 2008 og fram í febrúar 2009, áttu sér stað mestu uppþot Íslandssögunnar. Mótmælamenning Íslendinga tók stökkbreytingum, frá því að einkennast af kurteislegum útifundum og yfir í beinar aðgerðir. Anarkistar voru stærsta driffjöður aðgerðanna og ég varð helsti talsmaður beinna aðgerða á Íslandi.

Einnig tók ég þátt í flestum fjölmennum mótmælaaðgerðum á þessu tímabili, m.a. kom ég að
-Alþingisshússaðgerðinni (sem varð til þess að 9 manns voru dregnir fyrir dóm, ákærð fyrir brot sem fellur undir lög um landráð) tók beinan þátt í
-Kryddsíldaraðgerðinni á gamlársdag 2008,
-óeirðunum sem hófust við þingsetningu í janúar 2009 og
-mótmælum gegn Nató í lok janúar. Eftir þá aðgerð tókst mér að móðga hernaðarandstæðinga með því að skrifa í málgagn þeirra grein þar sem ég gagnrýndi þá fyrir að laumast af vettvangi á sama tíma og lögreglan var að berja anarkista sem ætluðu sér að ná meiri árangri með mótmælunum en að fá mynd af sér í blöðunum.

Auk þess hélt ég utan um stórt tengslanet, bæði á facebook og með símanúmerakerfi og boðaði í gegnum það til fjölmargra aðgerða bæði smárra og stórra. Nokkrum aðgerðum stóð ég fyrir sjálf í félagi við 2-3 aðra, þ.á.m. aðgerðinni “Sveltum svínið” í kringum jól og áramót, stóru götumótmælunum við Þjóðleikhúsið (þar sem Samfylkingin sat fund í kjallara) og mótmælaaðgerð við Seðlabankann nokkrum dögum síðar en sú aðgerð vatt upp á sig og stóð í nokkra daga, einnig næturheimsókn anarkistakórsins til þingmanna en auk þess að syngja bæði hátt og illa, á ég heiðurinn af þeim pólitísku vögguvísum sem fluttar voru við það tilefni.

Ofsóknir
Ég varð fyrir margskonar áreitni og ógnunum vegna framlags míns til Búsáhaldabyltingarinnar. Ég fékk m.a. hótunarbréf bæði stíluð á mig persónulega og bréf sem ætluð voru Saving Iceland, m.a. frá vélhjólasamtökum. Sonur minn og margir vina minna urðu fyrir hótunum um líkamsmeiðingar á götum úti og greip ég því til öryggisráðstafana vegna þeirra sem voru í mestri hættu. Sjálf neyddist ég til að flýja heimili mitt í nokkrar vikur eftir að þungum blýsökkum var kastað inn um glugga Nornabúðarinnar. Á þessum tíma bjó ég inn af rými verslunarinnar og þar sem ég sá ástæðu til að taka ofbeldishótanir alvarlega, svaf ég annarsstaðar í nokkrar vikur. Einnig varð ég mér úti um ólöglegt vopn, rafbyssu sem ég hafði innan seilingar á daginn.

2009
Hýðing á Lækjartorgi
Í kjölfar bankahrunsins ákváðu ráðamenn þjóðarinnar að hneppa Íslendinga í skuldafjörta gagnvart Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Til að vekja almenning til umhugsunar um merkingu þess efndi ég til gjörnings á Ingólfstorgi. Voru nokkrir þáttakendur klæddir sem böðlar og leiddu þeir þræla í keðjum frá Vesturgötu, niður á Ingólfstorg. Þar var ég ásamt öðrum manni hýdd með leðurstrimlasvipu á meðan aðrir þátttakendur dreifðu upplýsingum til vegfarenda. Hélt þrælalestin svo að stjórnarráðinu þar sem bænaskjal var afhent. Kom þessi aðgerð gríðarlegu óorði á mig í hópi meðalgreindra smáborgara og bý ég að þeim heiðri enn í dag.

http://mbl.is/frettir/sjonvarp/22893/

Ég hélt svo uppi andófi gagnvart AGS fram á vorið með stöðugum bloggskrifum og bréfum til ráðamanna, auk þess sem ég mætti ásamt Árna Daníel Júlíussyni á fund í Seðlabankanum með talsmönnum sjóðsins. Þar fékk ég þær ullýsingar að þótt sjóðurinn hefði að vísu þrautpínt vesalinga í öllum þeim löndum sem hann hefur komið nálægt, væri hann nú búinn að snúa við blaðinu.

2006-2009
Undir lögreglueftirliti
Á þessum tíma var heimasími minn hleraður án dómsúrskurðar og lögreglan elti bíl minn eigi sjaldnar en vikulega. Frá því í júlí 2006 og þar til ég losaði mig við bílinn á vordögum 2008, stöðvaði lögreglan mig eigi sjaldnar en 20 sinnum. Aðeins einu sinnu var erindið eitthvað annað en að spyrja “hvaða ferðalag” væri á mér en í það skiptið hafði einhver grínari skrúfað númeraplötu af bílnum mínum.

Síðla árs 2008 fékk ég athugasemd um að hugmyndir mínar um að ég væri undir lögreglueftirliti, bæru vott um alvarlega vænissýki. Teljarinn á vefsíðunni minni sýndi að þessi athugasemd kom frá ip tölu í eigu tölvudeildar dómsmálaráðuneytisins. Á næstu vikum fylgdist ég með teljaranum og sá að heimsóknir frá tölvum á vegum dómsmálaráðuneytisins voru ekki undir 30 á dag. Hélt svo fram þar til ég flutti af landi brott seinni partinn í mars 2009.

2009
Guð blessi Ísland
Í september þetta ár var frumsýnd hin ömurlega heimildamynd Helga Felixsonar “Guð blessi Ísland” Var ég ein af þremur aðalpersónum þessarar kreppuklámsmyndar sem er svo leiðinleg að hún fékk ekki einu sinni neikvæða gagnrýni, menn setti bara hljóða og lögðu flestir sig fram um að gleyma henni.

2010
Ekki lita út fyrir
Í mars 2010 kom út bók mín Ekki lita út fyrir –sjálfshjálparbók handa sjálfri mér og öðrum ýlandi dræsum.
Mun þetta vera sjálfhverfasta verk allra tíma og seldist aðeins eitt eintak af bókinni en það keypti ég sjálf.

2011
Þýðingar
Þýddi nokkur af kvæðum Bellmans (frábærar þýðingar sem enginn hefur sýnt áhuga) einnig skáldsöguna “Uppskrift að hjónabandssælu” eftir Kate Kerrigan, bók sem hefur verið þýdd á fjölda tungumála og selst vel í meira en 20 löndum. Enginn íslenskur útgefandi leit við henni.

Framtíðarplön
Eftir 18 mánaða atvinnuleysi í Danmörku,(lengst af í sárri fátækt, (eigandi ekki einu sinni rétt á aumingjabótum) og árangurslausar tilraunir til að verða mér úti um textaverkefni í gegnum íslenskar auglýsingastofur og bókaforlög, fór ég til Íslands og sótti um ýmis störf, m.a. sem blaðamaður. Fékk þau svör að ég hefði ekki réttar skoðanir. Einsetti mér að koma heim og fá almennilega vinnu eða að öðrum kosti una mér við ritstörf á kostnað íslenska velferðarkerfisins. Mun ég halda áfram að kalla sýslumanninn á Selfossi Þvaglegg sýslumann og Vilhjálm Egilsson bjánakepp, angra ráðamenn með bréfaskrifum, hvetja til borgaralegrar óhlýðni og taka þátt í hverskyns ólöglegu andófi á kostnað íslenskra skattgreiðenda.

Best er að deila með því að afrita slóðina