Leiðir til lausna 1

Lausnin blasir við. Hún felst í því að við hættum að hegða okkur eins og við séum rík og horfumst í augu við raunveruleikann. Við þurfum að hegða okkur eins og við séum fátæklingar, sem ætla að hætta að vera fátækir. Við þurfum t.d:

-Að hætta að henda pening í rekstur þjóðkirkju. Kristlingar fjármagni sitt áhugamál sjálfir.

-Leggja niður eins mörg sendiráð og mögulegt er. Þau sem nauðsynlega þarf að starfrækja verði höfð í ódýrum kjallaraíbúðum með húsgögnum úr góða hirðinum.

-Fækka Seðlabankastjórum í einn.

-Setja þak á hæstu samanlagðar tekjur. Um leið má afnema tekjuskatt, það er engin þörf á honum þegar enginn fær óhóflega háar tekjur.

-Segja upp aðild okkar að Nató.

-Halda áfram að senda bíla úr landi og flytja ekki fleiri inn næstu árin, nema vetnisbíla.

-Leggja niður Alþingi í núverandi mynd og taka í stað upp stjórnkerfi sem yrði skilvirkara og ódýrara í rekstri. T.d. mætti gera þingmennsku að þegnskylduvinnu.

-Láta forsetann fá gsm frelsi upp á 3000 kall á mánuði og loka fyrir símtöl til útlanda úr heimasímanum hans og frá forsetaskrifstofunni. Hann verður bara að læra á tölvupóst ef hann á erindi við fólk í útlöndum. Það sama gagnvart ráðherrum.

-Leggja niður allt sem flokkast sem risna og fríðindi hjá hinu opinbera.

-Hætta að hegða okkur eins og kóngar þótt einhver útlendingur komi í opinbera heimsókn. Það þarf ekki að bjóða skrilljón manns til veislu, 3-4 fulltrúar ættu að vera alveg nóg og íslensk kjötsúpa á Bessatöðum eða í ráðherrabústaðnum er fullboðleg í trantana á þeim.

-Afleggja öll ferðalög forseta og ráðherra til útlanda. Þeir hafa engu því að sinna sem má ekki afgreiða bréflega.

-Leggja niður alla þá starfsemi á ríkisfjölmiðlum sem hefur eingöngu afþreyjingargildi. Ríkisútvarpið sinni skyldu gagnvart almannavörnum, haldi úti fréttastofu og sinni því menningarhlutverki sem aðrir miðlar gera ekki. Engir framhaldsþættir eða b-myndir frá Hollywood.

-Ríkið hætti rekstri bifreiða fyrir valdastéttina og útvegi í staðinn strætókort og reiðhjól fyrir þá stjórnendur sem taka við (sem vitanlega hefðu ekki meiri völd en svo að hægt væri að setja þá af hvenær sem er). Fyrrum prestar gætu fengið vinnu við að gera upp notuð reiðhjól fyrir þá.

-Ríkið steinhætti að láta byggja hallir úr marmara og gleri, það er bara nóg komið af prjálinu.

-Leggja niður listamannalaun og alla ríkisstyrki til lista og menningar (að undanskilinni kennslu og tómstundastarfi fyrir börn, unglinga, aldraða og öryrkja), enda á ríkið aldrei að komast í aðstöðu til að hafa áhrif á það hverskonar list er sköpuð og hverskonar list nær athygli eða hvaða listamenn.

-Leggja niður allar greiðslur ríkisins til pólitískrar starfsemi. Fyrir kosningar (ef við höldum þá því kerfi að kjósa) fái hver flokkur samanlagt sína 3 klukkutíma til að kynna sig og sína stefnuskrá í fjölmiðlum og opnir borgarafundir með fulltrúum allra flokka verði haldnir á hverjum stað á kostnað ríkisins, en að öðru leyti verði lagt bann við kosningaáróðri og auglýsingum á opinberum vettvangi.

-Engin króna frá ríkinu renni til uppbyggingar stórfyrirtækja.

-Algjörlega verði tekið fyrir brottkast fiskjar og annarri sóun á matvælum. Verslanir og fyrirtæki í matvælaiðnaði fái smávægilegar greiðslur fyrir að skila inn mat á síðasta söludegi og þessi matur sem er allt í lagi með en yrði annars hent, verði notaður til eldamennsku á sjúkrastofnunum, í skólamötuneytum o.fl. stofnunum á vegum ríkisins. Ýmis þurrvara er vel nothæf löngu eftir síðasta söludag og ef mikið fellur til af ferskvöru má frysta helling af því. Þótt það þyki rýra gæðin þá erum við fjandinn hafi það fátæk og ættum að andskotast til að horfast í augu við það.

-Nýsköpunarsjóður verði lagður niður.

-Guðfræðideild Háskólans verði lögð niður.

-Mig verkjar í hjartað en í fúlustu alvöru; Menn læri heimspeki á eigin kostnað. Séu einhverjir Sókratesar tilbúnir til að uppfræða æskuna um rökfræði, siðfræði og mælskulist, má launa þeim með fríu fæði (sem annars yrði hent) og fríu húsnæði sem einhver útrásarvíkinganna hefur yfirgefið.

Þetta eru nú nokkar sparnaðarleiðir sem mér koma í hug svona í fljótu bragði. Ef einhverjum líður betur með það þá getum við kallað þær hagræðingu. Reikni nú einhver út hve mikið þessi hagræðing mun spara okkur, áður en ég rita næsta kafla af Leiðum til lausna.

 

Share to Facebook

One thought on “Leiðir til lausna 1

  1. —————————————————-

     

    bara leggja forsetaembættið niður. til hvers þurfum við forseta? má leggja þjóðkirkjuna niður líka, mín vegna.

    Posted by: baun | 6.12.2008 | 21:16:57

     —————————————————-

    Forseti er víst hugsaður sem andlit þjóðarinnar út á við. Kannski væri lausn að búa bara til grímu með saæmilega huggulegu andliti og svo mætti taka það upp sem atvinnubótavinnu að mæta á fundi og snobbsamkomur í útlöndum, með grímuna á smettinu. Þar með myndu allir þekkja andlit þjóðarinnar og þeir atvinnulausu yrðu bara glaðir að fá að fara í gegnum flugstöðina og taka tollinn.

    Posted by: Eva | 7.12.2008 | 0:06:43

     —————————————————-

    Síðan hvenær er það sparnaður að flytja inn vetnisbíla?

    Posted by: Óskar | 7.12.2008 | 3:11:05

    —————————————————- 

    Tek undir flestar lausnirnar. Forsætisráðherra á að kjósa sérstaklega í almennum kosningum og um leið leggja niður embætti forseta. Á Bessastöðum má í framtíðinni reka myndarlegt kúabú einsog gert var áður í áratugi. Nóg er af beitilandinu…

    Posted by: Ásgeir | 7.12.2008 | 14:38:53

     —————————————————-

    Það er reyndar talsvert hættulegra að markaðurinn ráði hvers lags list er sköpuð en ríkið. Í Tónskáldasjóði hefur styrkjum verið skipt nokkuð réttlátt. (reyndar hefur verið meira ósætti um sérstaklega Rithöfundasjóð).

    Væri markaðurinn einn við lýði myndi listalífið verða talsvert miklu fátæklegra. Mjög slæmar hömlur að þurfa bara að semja „það sem ‘fólkið’ vill heyra“

    Skil vel að fólki finnist svona megi skerast niður, en þetta er bara svo mikill grundvallarmisskilningur.

    Posted by: hildigunnur | 12.12.2008 | 20:07:22

     —————————————————-

    Ég held þú hafir hitt naglann á höfuðið í einum punkti þarna: „.. gera þingmennsku að þegnskylduvinnu“. Fólk verður að átta sig á því hvaðan valdið er sprottið.

    Posted by: agamemnon | 12.12.2008 | 23:35:56

     

Lokað er á athugasemdir.