Eins og hýenan rennur á blóðslóð

Rétt eins og hýenan rennur á blóðslóð, ráðast vinstri sósíalistar af hörku gegn öllum þeim sem andmæla hinni „réttu skoðun“.

Þannig kemst Brynjar Níelsson að orði í grein sinni „Nýjar vígstöðvar sósíalismans“  þegar hann lýsir  viðbrögðum umhverfissinna við þeirri skoðun forsætisráðherra að fjöldi umsagna frá náttúruverndarfólki ætti ekki að hafa áhrif á ákvarðanir um stórkostleg náttúruspjöll. Halda áfram að lesa →

Nú af hverju er þá bílstjórum snúið við?

Það er helbert rugl að þessi mótmæli hafi ekki valdið umferðartöfum. Lögreglan hefur þurft að snúa mörgum bílstjórum frá.

Sennilega á þessi frétt um engar tafir að breiða yfir ráðaleysi lögreglunnar sem er nú loksins að átta sig á því að það er bara mjög hæpið að lögreglan hafi rétt til að grípa inn í mótmælaaðgerðir af þessu tagi.

Hér á eftir fer skýring Saving Iceland á tiltækinu. Halda áfram að lesa →

Bjargvættirnar komnar á kreik

Duglegt fólk frá mörgum löndum dreif sig í Helguvíkina í morgun.

Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér málið birti ég hér að neðan nánari útlistun. Hinir munu sjálfsagt gjamma um hryðjuverkamenn og atvinnulausa atvinnumótmælendur í þeirri sælu blekkingu að ‘hreina orkan’ okkar sé að bjarga jörðinni frá kolaknúnum álverum í Kína og okkur Íslendingum frá hungurdauða.

Halda áfram að lesa →

Út um rassgatið á sér

Stundum efast ég um að fólk geti virkilega verið eins vitlaust og það gefur sig út fyrir að vera. Umræðurnar á Moggablogginu í framhaldi af uppákomu nokkurra aktivista í Kringlunni í gær eru gott dæmi. Hver bloggarinn af öðrum lýsir hneykslun sinni en virðist ekki hafa áttað sig á því hvað málið snýst um. Halda áfram að lesa →