Ég þorði varla að gera mér vonir um að fá tækifæri til að sjá leiksýninguna Með fulla vasa af grjóti en var svo heppin að fá boð á frumsýningu. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir merki: leikhús
Allt önnur Njála
Sáum Njálu í Borgarleikhúsinu í gærkvöld. Einhverju hefur slegið saman hjá mér því ég taldi mig hafa séð Jón Viðar hrósa sýningunni en áttaði mig fljótlega á því að það hlaut að vera misskilningur. Hún er skemmtileg en skortir dýpt, ofurfeminísk sýning og yfirmáta sjálfhverf þar sem áhorfandinn er ekki aðeins sífellt minntur á að hann er í leikhúsi, heldur einnig á að leikendur beri nöfn og eigi sér feril. Halda áfram að lesa
Leiktu mér sögu
Ég held að þeir sem fara mjög sjaldan í leikhús átti sig kannski ekki alveg á því hvað sagnaþulurinn er orðinn fyrirferðarmikill í leikhúsinu (allavega hér á landi). Halda áfram að lesa
Enn eitt leikritið
Frumsýning á Híbýlum vindanna í gær. Fín sýning. Jaðraði á köflum við að vera of artý fyrir minn smekk en slapp til og ég var ánægð með af leikstjórn, reyndar alla listræna stjórnun, hrifin af öllum leikurum, ekki síst börnunum sem stóðu sig mjög vel, sviðsmyndinni, búningunum o.s.frv. Sagan sjálf er dapurleg og sjálfsagt erfitt að segja svona mikla sögu í einu leikverki en handritið er þokkalegt. Sumsé vel þess virði að sjá þetta stykki. Halda áfram að lesa
Unskot!
Ég GLEYMDI að fara í Þjóðleikhússkjallarann í gærkvöld. Frétti af því að Snergillinn yrði þar uppistandandandi og svo ætluðu hinir bráðskemmtilegu Hraunverjar að heiðra tónlistargyðjuna. Ég gleymdi þessu og var komin í bælið um 11 leytið. Svaf aukinheldur til kl 11 í morgun þótt ég megi ekkert vera að því að eyða tímanum í bælinu. Halda áfram að lesa
Fatt
Ég hafði eiginlega hugsað mér að fara í ljós og verja svo seinni partinum fyrir framan spegilinn, lakka táneglur mínar með perlumóðurlakki og þekja yndisfagran líkama minn með appelsínuhúðareyði, vaxstrimlum, hárnæringu og maska, alveg þar til spegillinn segði hátt og skýrt; Halda áfram að lesa