Það var málið

Þrátt fyrir síaukna andúð mína á lögreglunni og andstyggð á ofbeldi, finnst mér í ákveðnum tilvikum réttlætanlegt að lögregla beiti ofbeldi að vissu marki. T.d. til að yfirbuga vopnaðan mann sem ógnar öðrum eða stöðva einhvern í því að ganga í skokk á annarri manneskju.

En að kalla það meðalhóf að bókstaflega rífa hús (sem ekki hafði fengist leyfi til að rífa) utan af óvopnuðu fólki, slá það með kylfum, úða yfir það eitri (sem að sögn þeirra sem fyrir urðu er eitthvað annað og sterkara en sá piparúði sem hingað til hefur verið notaður til að pína aktivista) slá höfði utan í vegg með þeim afleiðingum að brotnaði upp úr tönn og manneskjan missti meðvitund og fjarlægja spelkur af beinbrotnum manni, það er auðvitað fráleitt.

Það er aldrei ástæða til að beita ofbeldi gegn fólki sem ekki gerir árás að fyrra bragði. Fólk sem fer inn í hús mun fyrr eða síðar koma út aftur. Drukkið fólk mun fyrr eða síðar kasta af sér þvagi án þess að þvaglegg sé þröngvað inn í líkama þess með valdi. Fólk sem klifrar upp í krana mun koma niður aftur.

Í slíkum tilvikum er aðeins einn tilgangur með lögregluofbeldi og hann er sá að sýna vald sitt.

Hústakan á Vatnsstíg var pólitísk aðgerð gegn yfirgangi auðvaldsins. Umrætt hús var ekki heimili neins. Það var keypt í þeim tilgangi að misnota eignarréttinn til að valta yfir annað fólk. Eftir að núverandi eigandi keypti húsið, leigði hann hluta þess ógæfufólki, sérstaklega í þeim tilgangi að þrýsta á nágrannanna að selja sínar íbúðir. Hann keypti á stuttum tíma öll húsin sömu megin götunnar milli Laugavegar og Hverfisgötu en fékk ekki leyfi til að rífa þau. Hann tók þá hitann af húsunum með það að markmiði að eyðileggja þau svo auðveldara reyndist að fá leyfi til að rífa þau og reisa verslunarmiðstöð í staðinn. Engin leið hefur verið að fá þetta hús leigt. Hér má sjá eina frásögn manns sem gerði tilraun til þess.

Í skjóli eignarréttarins
-eyðileggur verktakinn menningarverðmæti
-hrekur íbúa úr götunni
-lækkar fasteignaverð í hverfinu
-valtar yfir skipulagsráð og ráðskast með útlit miðbæjarins
-hrekur fyrirtæki úr miðbænum með því að koma á samkeppni sem gerir út af við þau
-skapar hættu með því að láta grotnandi hús standa auð

Svarið við slíkri vanhelgun á eignarréttinum er hústaka og þekkist víða um heim. Ástæðan fyrir framgöngu lögreglunnar í þessu máli var ekki sú að almenningi stæði nein ógn af þessu fólki. Auðvaldinu stendur hinsvegar ógn af fólki sem setur nýtingarréttinn ofar réttinum til að eyðileggja og gjafarétt ofar gróðarétti.

Share to Facebook

One thought on “Það var málið

  1. —————————————–

    Sæl Eva, ég var að velta fyrir mér nokkrum staðreyndum. Þú segir á facebook síðu „Stuðningsmenn Aðgerðarsinna“ hér http://www.facebook.com/home.php?#/group.php?gid=40614211747 að þú sért á móti ofbeldi í mótmælum. Það skil ég vel. Svo ert þú skráð eða þín samtök fyrir þessari facebook síðu http://www.facebook.com/home.php?#/event.php sid=16a59eb26f377640e2a293698c66693b&eid=69389453347&ref=search
    Og í bloggi þínu skrifar þú um saklaust fólk sem er að mótmæla. Ég sé ekki mikið saklaust við það að kasta skyri, mat og öðru lauslegu svo sem steinu í lögreglu. Það er hreint ofbeldi í garð lögreglu sem er að sinna starfi sínu. Það er ekki lögreglan sem er að kaupa þessi hús en samt fær hún mesta skítin frá mótmælendum. Ég er hlynntur friðsamlegum mótmælum en það sem er komið núna er hrein vitleysa, og mótmælendur eru að ganga hvað eftir annað á peninga skattgreiðenda með því að valda eignartjóni og yfirvinnutíma lögregluþjóna svo eitthvað séi nefnt. Svo í sambandi við hávaðamótmæli þín sem plönuð voru í Mávahlíð eða á heimili þínu þá vil ég minna þig á að ofbeldi er til í fleiri myndum heldur en bara hnefalögmáli. Til dæmis hávaða. Veldur fólki andlegum og sálrænum skaða, og hvað þá ef að um ung börn sem gætu verið í nágrenninu er að ræða. Mér finnst samt leitt að tréð var höggvið og þú ert sennilega vernduð undir eitthverjum lögum um sameignir og getur krafist skaðabóta ef þú nennir að standa í málaferlum sem geta oft verið leiðinleg.
    Vona að þú áttir þig á þessu sem ég er að segja hérna að ofan.

    Posted by: Hlynur Ólafsson | 17.04.2009 | 23:38:34

    Sæll Hlynur

    Ég er búin að útskýra afstöðu mína til andófs og ofbeldis margoft en ég er alveg tilbúin til að gera það einu sinni enn og mun svara þér með sérstakri færslu.

    Posted by: Eva Hauksdóttir  | 18.04.2009 | 13:26:43
     

Lokað er á athugasemdir.