Heimsókn til Þórunnar

Í dag er alþjóðadagur grasrótarheyfinga gegn stóriðju. Þeir sem standa að þessu degi eru m.a. Saving Iceland, Rise Against í Trinidad, Earthlife Africa í S-Afríku, Alcan´t í Indlandi, Movement of Dam Affected People í Brasilíu og Community Alliance for Positive Solutions í Ástralíu. Allar þessar heyfingar eiga í höggi við sömu fyrirtækin en þar ber hátt nöfn eins og Rio-Tinto, Alcan og Alcoa.

Í tilefni dagsins fórum við Helga í morgunheimsókn til umhverfisráðherra. Við töfðumst aðeins og héldum að við hefðum misst af henni svo við settum bréf í blaðalúguna hjá henni en þegar við vorum að ganga frá húsinu tókum við eftir því að hún var að stíga inn í bílinn sinn. Við gerðum grein fyrir okkur og hún tók erindi okkar vel.

Bréfið er svohljóðandi:


Í dag, 12. september, standa grasrótarhreyfingar víða um heim fyrir alþjóðlegum mótmælum gegn stóriðju. Á Íslandi hefur hreyfingin Saving Iceland ákveðið að helga þennan dag stuðningi við baráttu íbúa í nágrenni Þjórsár. Af því tilefni viljum við koma eftirfarandi á framfæri.

Við lýsum vonbrigðum okkar með það hve lítið hefur heyrst frá þér um stóriðju á Íslandi eftir að þú tókst við embætti og óskum eftir því að þú gerir þjóðinni grein fyrir afstöðu þinni í þeim efnum. Þar sem Íslendingar hafa hvað eftir annað setið uppi með umhverfisráðherra sem hafa lagt blessun sína yfir umhverfisspjöll sem skaða ímynd landsins verulega og valda hneykslun um heim allan, finnst okkur eðilegt að krefja þig svara um stefnu þína.

Við köllum þessvegna eftir því að þú gerir grein fyrir afstöðu þinni til virkjana og stóriðju bæði almennt og þó sér í lagi til þeirra þriggja virkjana sem eru fyrirhugaðar í neðri hluta Þjórsár. Einkum væntum við skýrra svara við eftirfarandi spurningum:

-Ertu fylgjandi því eða mótfallin að af framkvæmdum verði?
-Hvað hefur þú gert til að hindra að áform Landsvirkjunar varðandi Þjórsá nái fram að ganga.
-Hvaða áætlanir eru uppi um að koma í veg fyrir að Hvammsvirkjun, Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun verði að veruleika?


——–

Ég held að Þórunn sé umhverfissinni. En það hélt ég líka um Siv á sínum tíma. Svo getur vel verið að Þórunn sé búin að vinna fullt af ósýnilegri vinnu en ef svo er vil ég að það starf verði gert sýnilegt.

Stjórnarráðið kl 12. Ef einhver vill koma með en er bíllaus þá endilega hafið samband.

Share to Facebook