Enda þótt konur lifi að jafnaði lengur en karlar, lendi síður í slysum og séu líklegri til að leita aðstoðar ef þær lenda í aðstæðum sem þær ráða ekki við, álíta margir, bæði karlar og konur, að okkur konum sé alls ekki treystandi til að taka ákvarðanir sem varða líf okkar og líkama.
Nýlega samþykkti Alþingi þingsályktun um frumvarp til laga um staðgöngumæðrun. Mér finnst út af fyrir sig merkileg hugmynd að það þurfi sérstök lög sem leyfa konum að ganga með börn fyrir aðra, ég hefði haldið að við réðum því bara án sérstakrar blessunar yfirvaldsins. Ég fellst þó á að þar sem reynsla annarra þjóða sýnir að það hvernig staðið er að staðgöngumæðrun ræður úrslitum um ánægju allra aðila, sé svosem ágætt að marka einhverja stefnu um það hvernig best sé að gera hlutina. Síðan þessi pistill var fyrst birtur hefur hið háa Alþingi svo ákveðið að setja ekki slíkar reglur heldur BANNA staðgöngumæðrun.
Sumir þeirra sem berjast gegn staðgöngumæðrun telja sig ekki þurfa nein rök önnur en sína eigin sannleikni. Þetta er fólk, sem í fullvissu um að það sé siðferðilega yfir aðra hafið, teflir fram rökleysum sem eiga að þagga niður í andmælandanum með því að sýna fram á lélegt siðferði hans og/eða skilningsleysi á hugtökum sem tengjast siðferði.
Mannréttindarökvillan
Eitt dæmi um sannleiknirök er mannréttindavillan. Málið er þá tengt við mannréttindi í því skyni að annaðhvort ýkja mikilvægi þess eða sýna fram á að krafan eigi ekki rétt á sér. Þegar staðgöngumæðrun er til umræðu birtist þessi villa iðulega í eftirfarandi staðhæfingu:
Það eru ekki mannréttindi að fjölga sér. Fólk sem getur ekki eignast börn, getur bara ættleitt.
Jájá, það er alveg hreint laukrétt að það eru ekki mannréttindi að fjölga sér. Það er hins vegar út í hött að ekkert eigi rétt á sér nema það sem fellur undir mannréttindahugtakið. Ef út í það er farið er æxlun heldur ekki mannréttindi þeirra sem geta eignast börn hjálparlaust. Samt dettur fáum í hug að banna fólki að eignast sín eigin börn á meðan enn eru börn í veröldinni sem vantar heimili. Þetta eru því ekki tæk rök gegn frelsi annarra til að eignast börn með hjálp konu sem er að sönnu reiðubúin til að veita þá hjálp.
Hlutgervingarrökvillan
Önnur sannleiknirök sem maður sér oft í þessari umræðu er hlutgervingarvillan. Þjónustuhlutverk er þá tengt lítilsvirðingu, í því skyni að telja viðmælandanum trú um að það sé misneyting að þiggja ákveðnar tegundir þjónustu, einkum þar sem kynferði skiptir máli. Dæmi um þetta er frekar þreytt stef af umræðuþráðum netmiðlanna;
Það er siðferðilega rangt að nota konu sem útungunarvél og hýsil fyrir barn annarra.
Sjálfri finnst mér frekar dapurlegt að sjá barnfyrirlitninguna sem opinberast í því að tala um móðurlíf sem hýsil, rétt eins og fóstrið sé einhver óværa. Ég kýs að tala um að staðgöngumæður fóstri ófædd börn annarra, enda líta þær svo á sjálfar sem og foreldrarnir sem ætla svo að sinna uppeldishlutverkinu. Hlutgervingin hér er ekki af hálfu þeirra sem vilja fóstra ófædd börn eða fá aðra konu til að fóstra barn fyrir sig, heldur af hálfu þeirra sem tala um þær konur sem hýsla eða útungunarvélar.
Flestir tefla þó fram vitrænni ummælum í bland við þessi frekjurök. Sumir óttast að staðgöngumæðrun opni leið fyrir barnasölu. Margir að með einkavæðingu kvenlíkamans, þ.e. með því að taka yfirráðarétt hans úr höndum yfirvalda og færa hann til þeirra sem búa í hverjum líkama fyrir sig, aukist hættan á því að við, hinar fávísu og undirokuðu konur, förum okkur að voða og að aðrir þvingi okkur og misnoti.
Ég hef ekki heyrt það í umræðunni á Íslandi en í Bandaríkjunum og Bretlandi hefur eftirfarandi líka verið haldið fram:
Ég get alveg skilið þessar áhyggjur. Sumt af því sem andstæðingar staðgöngumæðrunar óttast, á við í mjög fátækum ríkjum. Löndum eins og Indlandi, þar sem kvennakúgun er mikil og barnasala og þrælahald viðgengst án teljandi afskipta yfirvalda. Enda þótt þingsályktunartillagan snúi aðeins að staðgöngumæðrun í velgjörðaskyni, telja sumir að þar með sé verið að búa til umhverfi sem leggur blessun sína yfir viðskipti með konur og börn. Þannig að já, ég skil það.
Önnur myndin sýnir ástættanlegt kvennastarf, hin nokkurs konar ánauð
Það sem ég skil ekki er að fólk sem hefur áhyggjur af þessu, skuli ekki skoða þau gögn sem til eru og draga ályktun út frá þeim. Ég skil heldur ekki vinsældir þessarar Indlandstengingar. Engum heilvita manni dettur í hug að bera Ísland saman við Indland þegar taka á afstöðu til ættleiðinga. Á Indlandi tíðkast barnasala, það merkir ekki að ættleiðingar á Íslandi hafi leitt til slíkra viðskipta. Indland er heldur ekki það land sem við lítum til þegar við ræðum líffæragjöf því jafnvel þótt líffærasala blómstri á Indlandi fer engum sögum af því að hún tíðkist á Norðurlöndum.
Það sama má segja um staðgöngumæðrun. Indland er hreinlega ekki sambærilegt við Ísland. Ekkert af því sem hefur verið nefnt sem rök gegn staðgöngumæðrun kemur heim og saman við neina þeirra rannsókna sem gerðar hafa verið á staðgöngumæðrun í Bretlandi og Bandaríkjunum, sem er nú öllu nærtækara að bera okkur saman við.
Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér rannsóknir á staðgöngumæðrun á Vesturlöndum geta sparað sér mikinn tíma með því að lesa ritgerð Karen Busby og Denaley Vun; Revisiting The Handmaid’s Tale: Feminist Theory Meets Empirical Research on Surrogate Mothers. Þetta er úttekt á 37 rannsóknum á staðgöngumæðrum í Bandaríkjunum, Bretlandi og Kanada sem unnar hafa verið á síðustu fjórum áratugum.
Ég er nú búin að lesa þessa ritgerð vandlega. Ég átti von á því að hugmyndir andstæðinga staðgöngumæðrunar um kúgun og hörmungar væru stórlega ýktar. Ég reiknaði fastlega með því að sumar „rannsóknir“ kynjafræðinga á staðgöngumæðrun væru vafasöm vísindi. Ég átti þó ekki von á því að nánast allt sem andstæðingar staðgöngumæðrunar hafa haldið fram væri hreinn og klár heilaspuni. Svo er þó helst að sjá því helstu niðurstöður eru þessar:
Ég hvet þá sem óttast að lög um staðgöngumæðrun hafi í för með sér kvennakúgun og kynþáttamismunun til að lesa ritgerðina.
Og fyrir alla muni hafið í huga að „rannsóknir“ sem gerðar eru í nafni feminisma, fara þannig fram að fyrst er sett fram tilgáta sem byggist á þeirri hugmynd að konur séu alltaf í veikri stöðu, ófærar um að taka eigin ákvarðanir og í stöðugri hættu á að vera undirokaðar, kvaldar og seldar, og svo eru einstaklingar og tilvik sem styðja tilgátuna handvalin og alhæft út frá þeim. Þess háttar vinnubrögð heita kynjafræði en ekki vísindi.
Helgisagan um fæðingu Jesú er á þessa leið: Ágústus keisari vill taka manntal og Jósef…
Ég var beðin um stutt fréttarant fyrir Lífið á Fréttablaðinu í dag. Þetta hef ég…
Gefum okkur að "rétt mál" sé það sem málsamfélagið kemur sér saman um. Látum andartak…
Sumarið 2020 var þáverandi yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Skúli Tómas Gunnlaugsson, sviptur starfsleyfi vegna margháttaðra afglapa…
Margur karlinn er svo heillaður af dindlinum á sér að hann finnur sig knúinn til…
Árið 2014 sendi lögmaðurinn Max Gracia Kanasa i Benín mér tölvupóst í gegnum Yahoo netfangið…