Barnabull

Börn

Kannski er hugmyndin um áhrifamátt bundins máls á undanhaldi en hún hefur lengst af verið áberandi í íslenskri menningu. Hún birtist til að mynda í galdratrú þar sem ákvæðakveðskapur skipar stóran sess og eins hefur skáldskapur löngum þótt áhrifarík leið til að kveða niður drauga. Halda áfram að lesa

Láki til liðs við hreyfinguna

LákiFyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins Láki Snjákason, jarðálfur er genginn til liðs við Hreyfinguna. Láki tilkynnti þessa ákvörðun sína á blaðamannafundi í morgun.

„Ég var bara orðinn gjörsamlega hugmyndalaus og hættur að hafa gaman af því að gera öðrum illt, svo mér datt í hug að prófa að gera eitthvað sem gott er og fallegt“ sagði þingmaðurinn í samtali við Fréttastofuna.

Fyrsta góðverk Láka á þingi var að leggja fram frumvarp um friðun apa á þingi en eftir að Hreyfingin náði að hasla sér völl, hefur hlutfall bavíana og annarra apakatta snarlækkað á Alþingi og hafa stjórnmálaskýrendur lýst yfir áhyggjum af því að með sama áframhaldi gæti farið svo að Ísland verði ekki lengur talið til bananalýðvelda á alþjóðavettvangi.