Í einhverjum skilningi erum við að upplifa heimsendi. Við munum ekki öll deyja (nema Bubbi) en heimurinn verður öðruvísi. Kannski ekki endilega að öllu leyti verri – en öðruvísi. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Pælingar
Frásögn Biblíunnar af heimsendri pizzu
Varla er til sá Íslendingur sem hefur ekki borðað heimsenda pizzu en hver ætli hafi borðað fyrstu heimsendu pizzu veraldarsögunnar? Halda áfram að lesa
Sótthreinsuð barnamenning
Þegar ég var lítil heklaði móðir mín handa mér púða sem ég var mjög hrifin af, súkkulaðibrúnt andlit með trúðsmunn og mikið úfið hár. Þetta var negraskrípi (golliwog), svipað svartálfunum í bókunum um Dodda í Leikfangalandi. Halda áfram að lesa
Þú ert víst miðaldra!
Þegar ég var lítil voru ömmur með svuntur. Þær steiktu kleinur og prjónuðu vettlinga og sungu Guttavísur fyrir barnabörnin. Í dag eru ömmur hinsvegar skvísur. Allar í ræktinni eða útlöndum, og ekki slæðu bunda yfir rúllurnar í hárinu heldur með grænar strípur og tattútveraðan upphandlegg. Halda áfram að lesa
Heimsósómarausið í unga fólkinu
Mér er farið að leiðast heimsósómarausið í unga fólkinu. Þessa dagana hamast netverjar við að deila myndum af hópum fólks sem er að skoða snjallsímana sína, ásamt harmkveinum um það hvað þetta sé nú allt hræðilegt; fólk er bara hætt að eiga samskipti, heimur versnandi fer og allt það. Halda áfram að lesa

