Þyrnirósarævintýrið hefur verið mér hugleikið síðustu vikur. Það er nefnilega eitt atriði í þeirri sögu sem hefur alltaf vafist fyrir mér sem mér finnst allt í einu mun skiljanlegra. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Menning og listir
Aðgerðaröðin í Kúst og fæjó
Þetta með kúst og fæjó – textahöfundur virðist ekki hafa mikið verksvit. Maður sópar vitanlega áður en maður setur tertuna á borðið. Það er ekki gaman að vera með kústinn á fullu þegar gestirnir koma en það er allt í lagi að setja veitingarnar á borðið þegar allir eru komnir og reyndar setur maður ekki aðrar veitingar á borðið en drykki og hugsanlega einhvern lystauka áður en gestirnir koma nema maður sé með stórveislu. Svo er maður ekki að þrífa þegar er korter í gestina og maður á enn eftir að marinera öndina. Og ætlar hún að hafa tertuna á undan öndinni eða á tertan að standa á borðinu og draga í sig lyktina af kjöti og sósu?
Þetta er grátlegt dæmi um skipulagsleysi og ég yrði ekki hissa þótt kæmi á daginn að hún hefði klætt sig í sparigallann áður en hún þreif og komið til dyra stífmáluð og ilmandi með fægiskúffuna í annarri hendi og úlnda tusku í hinni.
Aðgerðaröðin í þessum saumaklúbbsundirbúningi hefði vitanlega átt að vera þessi: Halda áfram að lesa
Hirti löggan Búdda eða snúðinn?
Löggumann hafði aftur afskipti af Búdda vikur síðar en þá átti Búddi engan snúð
Búddi fór í bæinn
og Búddi fór í búð.
Búddi sat á torginu
og var að éta snúð.
Þá kom löggumann,
og hirti hann
og stakk honum ofan í rassvasann.
Um sýninguna „Með fulla vasa af grjóti“
Ég þorði varla að gera mér vonir um að fá tækifæri til að sjá leiksýninguna Með fulla vasa af grjóti en var svo heppin að fá boð á frumsýningu. Halda áfram að lesa
Þekkir þú höfund bókarinnar Men Only … ?
Sumarfrí eru eiginlega alveg ágæt. Ég sit í eldhúsinu á Hámundarstöðum í Hrísey og les bók sem kom út í íslenskri þýðingu 1956, Kvenleg fegurð, eða á frummálinu Frau Ohne Alter. Höfundurinn er rússnesk-þýsk leikkona; Olga Tschechowa en bókin er þýdd og staðfærð af frú Ástu Johnsen og prýdd myndum af íslenskum fegurðardrottningum, auk mynda úr þýsku bókinni. Halda áfram að lesa

