Ég gerði mér ekki grein fyrir því fyrr en ég flutti til útlanda hvers konar drasl íslenskir brauðostar eru. Ostur er reyndar rangnefni, þeir eiga meira skylt við gúmmí. Og nei, ég er ekki að tala um gerviost sem er seldur sem pizzuálegg heldur þetta rusl sem er kallað brauðostur, góðostur, skólaostur gauda o.s.frv. Halda áfram að lesa
Sjálfsmorðsþjónustan – ný verðlaunakvikmynd
Þorkell Ágúst Óttarsson er íslenskur kvikmyndaáhugamaður búsettur í Noregi. Hann hefur þrátt fyrir takmörkuð fjárráð gert fjölda stuttmynda og hefur nú náð þeim árangri að fyrsta mynd hans í fullri lengd Suicide Service var valin besta myndin í alþjóðlegu kvikmyndasamkeppninni The Monkey Bread Tree, auk þess sem hann var tilnefndur til verðlauna fyrir bestu kvikmyndatökuna. Halda áfram að lesa
Túlkun Kvennablaðsins á gömlum meistaraverkum
Sótthreinsuð barnamenning
Þegar ég var lítil heklaði móðir mín handa mér púða sem ég var mjög hrifin af, súkkulaðibrúnt andlit með trúðsmunn og mikið úfið hár. Þetta var negraskrípi (golliwog), svipað svartálfunum í bókunum um Dodda í Leikfangalandi. Halda áfram að lesa
Málsýni úr lagadeild
16. nóv. 2014
Sérfræðingaútskýring á þeirri hugmynd að allir menn eigi að njóta jafnra borgaralegra réttinda:
Hver persóna á að hafa jafnan rétt á ítrasta kerfi jafnra frelsisréttinda sem samræmst getur sambærilegu kerfi frelsisréttinda fyrir alla.
Á ensku hljóðar þetta svo
Each person is to have an equal right to the most extensive total system of equal basic liberties compatible with a similar system of liberty for all.
Ég veit ekki hver á heiðurinn af þýðingunni sem er að finna á glæru sem notuð er við kennslu við Lagadeild HÍ. Halda áfram að lesa
