Þrisvar sinnum Y

Y er fegurstur bókstafa. Þau orð hljóta því að vera óvenju fögur sem geyma óvenju mörg y. Ég bað fésverja um tillögur að íslenskum orðum þar sem þrjú y koma fyrir. Þurfa ekki endilega að vera í orðabók en þurfa að hljóma nógu eðlilega til þess að geta verið nothæf. Þetta er útkoman: Halda áfram að lesa

Hvaðan kemur þessi sýra?

Í nótt var ég í eldhúsinu að djúpsteikja rækjur (sem ég geri aldrei) af því að stöðugleikastjórnin var að koma í mat. Ég hafði boðið öllu liðinu í mat til að kynna þeim splunkunýja stjórnarskrártillögu sem engill drottins hafði fært mér á gulltöflum. Ég gerði mér grein fyrir því að það kynni að þykja ótrúverðugt og var eitthvað að velta því fyrir mér hvort yrði kannski bara trúverðugra að eigna sjálfri mér krógann. Í draumnum hafði ég samt engar áhyggjur af því að sú staðreynd að ég var í kafarabúningi, með froskalöppum og súrefniskút, kynni að hafa áhrif á trúverðugleika minn.

Egg í sultu

Dreymdi að ég væri þáttakandi í raunveruleikaþætti kokka. Verkefnið var að útbúa rétt sem lýsti ríkisstjórn DVB. Minn réttur var linsoðin egg í rabarabarasultu.

Ég útskýrði að Vg væru rauðan, Sjallar hvítan og Framsókn sultan, af því að rabarabrasulta væri bæði þjóðleg og klístruð. Ég skil þetta með sultuna en veit ekki hversvegna Vg og Sjallar ættu að líkjast eggi.

Ég vissi að þetta gæti ekki verið góður réttur en verkefnið var ekki að elda eitthvað gott, heldur táknrænt.

Tvöfaldur og tvítekinn

Þvottapottur, innivinna, happatappi, rottuskott, kakkalakki,

Ég fann Fésbókarfærslu frá 2013 þar sem ég hafði beðið Fésverja að hjálpa mér að finna eða búa til fleiri orð af þessu tagi, þ.e. sett saman úr tveimur orðum með sömu samstöfunni af einum sérhljóða og tvöföldum samhljóða. Hér eru tillögur. Endilega bætið við. Halda áfram að lesa