Y er fegurstur bókstafa. Þau orð hljóta því að vera óvenju fögur sem geyma óvenju mörg y. Ég bað fésverja um tillögur að íslenskum orðum þar sem þrjú y koma fyrir. Þurfa ekki endilega að vera í orðabók en þurfa að hljóma nógu eðlilega til þess að geta verið nothæf. Þetta er útkoman:
- Fyllibyttufyndni
- Fyllibyttulykt
- Fyllibyttumynd
- Fyrirhyggjuleysi
- Fyrirmyndarbyggð
- Fyrirmyndarfjölskylda
- Frystigeymslulykill
- Kyngervisfyrirmynd
- Kynjafyrirmyndir
- Lyfleysueyðing
- Myndasyrpukynning
- Syndayfirhylming
- Skynbreytingarlyf
- Skyndikynnaleysi
- Skyndikynnasyndir
- Yfirþyngdarlyftingar
- Yngismeyjafnykur
- Yngismeyjaryndi
- Þyngdarleysisfyrirbæri
Vafasöm en gætu samt kannski gengið í skrafli á þriðja bjór:
- Byggingarmyndakynning
- Byssuskyttumynd
- Fyllibytturykti
- Leyndarhyggjuhygli
- Leyndarhyggjufylgni
- Skyndikynnafnykur
- Skyrmysubytta
- Yfirbyggingarfyrirbæri
- Yfirheyrslusyrpa
- Yfirfyllibytta
- Ylyrðisyndi
- Yngismeyjamyndir
- Yngismeyjayfirsjónir