„Þetta var bara púra klámvæðing. Minns var bara hlutgerður í druslur,“ haarderaði Geir eftir að Landsdómur kvað upp úrskurð sinn í gær. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir merki: Geir Haarde
Sakfelldur fyrir smekkleysu

Geir er gríííþarlega reiiiþur
Fyrrum forsætisráðherra, Geir Haarde, kom fyrir Landsdóm í dag. Hann var sýknaður af áburði um að bera aleinn ábyrgð á uppgangi kapítalisma í hinum vestræna heimi en sakfelldur fyrir einstök ósmekklegheit í starfi.
Geir er ekki gerð sérstök refsing fyrir smekkleysuna en þó bannað að gegna framar ráðherraembætti nema að því tilskildu að hann fái sér stílista.
Dómfelldi sagðist í samtali við Pistilinn vera „gríííþarlega reiiiiþurr yfir dómnum“ Hann hefur þó fallist á að tileinka sér betri tískuvitund og mun hafa ráðið verðandi sameiningartákn þjóðarinnar sér til ráðgjafar.
Vegna Landsdómsmálsins
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/250854238318801
Það er með ólíkindum að innanríksráðherra vilji að Alþingi skipti sér af dómsmálum en það er margt sjúkt og rangt við Landsdómsmálið engu að síður.
Ég er ósammála Ögmundi um að það hafi verið rangt að ákæra Geir. Hinsvegar er það alveg rétt hjá honum að þetta lyktar allt saman af pólitík og það er reginhneyksli að enginn úr Samfylkingunni þurfi að sæta ábyrgð. Stóra málið hér er svo aftur það að ákærandinn í málinu (Alþingi) breytir lögunum eftir að ákveðið hefur verið að gefa út ákæru. Ég hef takmarkaða samúð með Geir en ef þetta er í lagi, hver verður þá fyrir því næst? Við getum ekki rekið réttarkerfi sem virkar á þennan hátt fyrir skúrkana en allt annan hátt fyrir vini okkar.
Sálmur handa Sóma
Íslandi blæðir því álrisans her
og atvinnunáttúruspellvirkjager
veður hér uppi og ábyrgðin er,
(svo einungis fáa við nefnum);
hjá gráðugum rottum, en gleðjumst með söng,
og gerum svo lista yfir heimilisföng
og hefnum. Halda áfram að lesa