Sukkjöfnunarsúpa

Í gær bjó ég til blómkálssúpu. Notaði mjólk og kartöflur í staðinn fyrir rjóma. Það er reyndar alls ekki nauðsynlegt að nota neitt meira en kálið sjálft ef maður á góðan blandara en maður verður fljótt svangur ef er engin næring í súpunni.

Ég sauð kartöflur, blómkálsstöngul og lauk ásamt hvítlauk, súputeningi, smjöri (10 g á mann), karrýi, smá múskati, salti og pipar. Bætti mjólk út í þegar þetta var búið að sjóða í svona rúman hálftíma og hleypti suðunni upp.Lét kólna aðeins og maukaði svo í blandaranum. Setti aftur í pott, blómkálsknappa út í og sauð í 5 mínútur. Bætti svo dálitlu sherry út í.

Á meðan súpan var að sjóða steikti ég sveppi gullinbrúna í dálitlu smjöri (10 g á 120 gr af sveppum) og reif 30 grömm af góðum osti. Ég bar súpuna þannig fram að ég setti nokkur lauf af klettasalati ofan á og steikta sveppi og ost í miðjuna.

Þetta varð ósköp góð súpa, þykk og mjúk. Ég er ekki viss um að rjómi hefði bætt hana verulega mikið. Minna en 800 hitaeiningar með osti og öllu. Þetta var yfirdrifið nógur matur handa okkur Einari báðum en við borðum næstum alltaf salat í forrétt. Með salatinu eru þetta 400-500 he á mann, eftir því hvað maður notar mikla olíu á salatið og mikinn ost í súpuna. Og ef er einhver á heimilinu sem þarf meiri orku þá býður maður bara upp á brauð með súpunni.