Smá viðbót í sparibaukinn

Ég býst svosem ekki við því að bankastjóragreyin muni mikið um þennan 200.000 kall. Þeir borga svo hroðalega skatta af þessu blessaðir mennirnir. Hvernig væri að hækka frekar örorkubætur og lægstu laun um sömu upphæð? Það fólk fyndi þó allavega fyrir hækkuninni jafnvel þótt það hefði nógu lítið vit á fjármálum til að greiða tekjuskatt í stað fjármagnstekjuskatts.

One thought on “Smá viðbót í sparibaukinn

  1. ———————-

    Er einmitt búin að vera með opinn munninn af hneykslun frá því 7 í morgun yfir þessu bulli. Fuss og svei.

    Meðan sveltur lýðurinn, þar á meðal ég…..

    Posted by: lindablinda | 6.06.2007 | 11:11:32

Lokað er á athugasemdir.