Skuggafugl

„Það eru svartfuglar í djúpinu þínu“
sagðir þú
og rýndir í yfirborðið.
Reyndir að veiða þá en þeir hurfu
þegar þú gáraðir vatnið.

Hefðirðu bara litið til himins
þá hefðirðu séð
að þeir voru aðeins endurvarp
frá glersléttu yfirborði.
Skuggar hvítra máva
sem flugu þar yfir.

Hvað býr í djúpinu?
Eitthvað mun þar vera um hála steina,
sokkin sjóræningjaskip
og eflaust hugsa fiskarnir sitt
þótt fáir hafi heyrt þá syngja.

En ógárað yfirborð,
gæskurinn,
það er spegilmynd. Ekkert meira.