Prúðmannleg mótmæli

-Úff þetta hljóta að vera slöppustu mótmæli Íslandssögunnar.
-You wish! Ég hef verið viðstaddur mörg mótmæli sem voru bæði fámennari og slappari.
-Nú? hvaða mótmæli voru það?
-Mótmæli sem enginn man eftir, auðvitað.
-Og enginn vissi einu sinni af.
-Er það ekki nákvæmlega þetta sem er verið að hvetja okkur til að gera, mótmæla þannig að það trufli engan?
-Ein svona máttlaus aðgerð er alveg nóg fyrir mig, næst kem ég með litboltabyssuna mína.
-Mér líður eins og herstöðvarandstæðingi.

Að lokum safnaðist hópurinn saman við ruslagáminn og gólaði á hann. Það er jafn líklegt til árangurs.

 

One thought on “Prúðmannleg mótmæli

  1. —————————————–

    Ég hélt að þessi gól snérust um finnska skógarhátíð.

    Posted by: Langi Sleði | 1.08.2007 | 16:10:49

    —————————————–

    þetta var ekki mjög kraftmikið hjá okkur, það var satt 😀

    Posted by: hildigunnur | 1.08.2007 | 20:09:53

Lokað er á athugasemdir.