Skelfilegir þessir umhverfissinnar sem trufla notalega smáborgaratilveru okkar með því að vekja athygli á óþægilegum staðreyndum. Og það væri nú fínt ef umhverfissinnar væru eina hugsjónafólkið en það er nú aldeilis ekki svo. Það er líka til í dæminu að kvenréttindabaráttan ógni heimilsofbeldi, krabbameinsforvarnir ógna reykingum og mannréttindabaráttan ógnar starfsemi Gutanámo.
Hroðalegt ástand alveg.
—————–
Satt segirðu! Og ég man þá tíð að aukin fræðsla um gildi brjóstagjafar ógnaði þurrmjólkurframleiðendum. Það var nú heilmikil barátta fyrir okkur hugsjónakellurnar sem voru með börn lengi á brjósti – þó ef til vill sé hún flestum gleymd núna.
Posted by: Sigga | 22.06.2008 | 16:40:32