Ég er orðin feitabolla. Hef svosem verið það í allt sumar og hugsa daglega að nú ætli ég að fara að gera eitthvað í þessu. Ég hef enga afsökun, á ekki einu sinni neitt sérlega erfitt með að láta á móti mér að borða meira en ég þarf, ég hef bara verið of kærulaus. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Liljur vallarins (dagbók)
Á sérstökum stað
Bara svo það sé á hreinu þá er ég ekki á leið með að verða útivistarfrík en um helgina gerði ég nú samt aðra tilraun til að fara í útilegu. Ég hef hingað til talið rétt að prófa allt einu sinni en nú er ég komin að þeirri niðurstöðu að sumt þurfi að prófa þrisvar sinnum áður en maður gerir upp við sig hvort það er áhugavert eða ekki. Halda áfram að lesa
Rún dagsins er Elgur
Elgur er varnarrún sem táknar hin stóru horn elgsins. Elgur er allra rúna nytsamlegust því hún er mögnunarrún og er notuð í galdri til þess að magna áhrif annarra rúna og á næstum alltaf vel við. Hún er notuð til að verjast árás eða illum hug og er vinsæl sem verndargripur.
Í rúnalestri táknar Elgur að spyrjandinn hefur alla burði til að verjast erfiðleikum og árásum. Hann er hugrakkari en hann heldur og þarf bara að taka fyrsta skrefið, eftir það verður allt auðveldara. Þegar rúnin kemur upp með öðrum rúnum táknar hún aukin áhrif þeirra þátta sem gæfurúnir standa fyrir og vörn gegn bölrúnum.
Rún dagsins er Barð
Barð er verndarrún og hentar byrjendum vel því hún gerir ekkert illt. Barð táknar vernd heimilis og einkalífs og er ekki síst notuð sem verndargripur fyrir börn og aðra smælingja.
Í rúnalestri táknar Barð ein og sér að leyndarmál spyrjandans eru vel geymd og ekkert illt steðjar að honum. Ef bölrúnir koma upp næst henni getur það táknað að ógn vofi yfir og því sé tímabært að huga að tryggingum og öryggisbúnaði. Ef Barð kemur upp næst Mannsrúninni táknar það traustan vin eða verndara en komi jafnframt upp Nauð eða Þurs þarf spyrjandinn að varast fláráða vini.
Rún dagsins er Ýr
Ýr er rún sköpunar og sveigjanleika. Ýr merkir bogi, sem er notaður til þess að skjóta ör í mark, en einnig íviður, sem er mjúkur og sveigjanlegur og gott efni í boga. Í galdri er rúnin notuð til þess að ná fram góðum samningum sem báðir aðilar hagnast á og til þess að tryggja farsæla lausn í deilumálum og finna nýjar lausnir.
Þegar Ýr kemur upp í rúnalestri táknar hún að spyrjandinn geti fengið sínu framgengt, að minnsta kosti þannig að hann verði sáttur, ekki með því að vera harður í samningum heldur með því að gefa eftir og huga að fleiri valkostum.