Auglýsing

Óskað er eftir kandidat í hlutverk kynlífsviðfangs. Skilyrði fyrir framlögn umsóknar eru eftirfarandi:

-Viðfangið skal vera af hinu hærðara kyni
(ath. þó að ekki er óskað eftir sérlega hærðu eintaki)
-Viðfangið þarf að vera vel þrifið
-Nauðsynlegt er að það sé vel máli farið
-Viðfangið á helst að vera undirgefið og a.m.k. hlýðið

-Fallegir umsækjendur munu njóta sérstakrar velþóknunar en lítið útlitsgölluð eintök koma einnig til greina.
-Árrisul viðföng eru sérlega vel séð en vegna óvenjulegs sveigjanleika míns og raunsæis er er ekki ófrávíkjanlegt skilyrði að viðfangið sé morgunhani.