Ætli það geti verið orsakasamhengi?

Eitt annað dæmigert fyrir þá sem fremja fjöldamorð er aðgengi að skotvopnum. Stjórn Bandaríkjanna virðist seint ætla að átta sig á fylgninni milli frjálslegrar skotvopnalöggjafar og morða.

One thought on “Ætli það geti verið orsakasamhengi?

  1. ————————————————–

    Þetta heldur ekki alveg.

    Í ágætri mynd Michael Moore kemur fram að byssueign og aðgengi Kanadamanna að skotvopnum er svipað og í USA en morðatíðni í Kanada er miklu lægri. Það er semsagt eitthvað annað/fleira en aðgengið sem orsakar öll þessi manndráp í Ameríku…

    Posted by: HT | 20.04.2007 | 8:15:21

    ————————————————–

    sama í Sviss, þar er víst mjög auðvelt að verða sér úti um skotvopn. Ekki að ég sé að verja skotvopnalög í BNA.

    Hefur þetta ekki eitthvað með það að gera að fólk er alið á ótta, sí og æ?

    Posted by: hildigunnur | 20.04.2007 | 10:46:59

    ————————————————–

    Það er áreiðanlega fleira sem spilar inn í en einhvernveginn hef ég á tilfinningunni að manntjón hefði ekki orðið jafn mikið núna um daginn ef morðinginn hefði verið með vasahníf.

    Posted by: Eva | 20.04.2007 | 11:42:59

    ————————————————–

    Það hefðu líka getað verið miklu fleiri fórnarlömb ef þessi vesalings brjálæðingur hefði verið sæmilega vopnaður. Vélbyssurnar og sprengjuvörpurnar sem í sumum fylkjum eru seldar yfir borðið gera eibeittum brjálæðing kleyft að drepa fólk í mikið stærri stíl en þetta. Svo má ekki gleyma að með einföldum hætti hafa menn gert sprengju úr olíu og köfnunarefnisáburði (sem drap 168 í Oklahoma), ekki að ég ætli að reyna að verja byssudellu kanans, en það má heldur ekki horfa framhjá staðreyndum…

    Posted by: HT | 20.04.2007 | 12:31:23

Lokað er á athugasemdir.