Forvirkar rannsóknarheimilidir á Svandísi

Ég biðst afsökunar á því að hafa fagnað því þegar Ögmundur tók við embætti mannréttindaráðherra. Ég taldi að hann myndi vinna ötullega að mannréttindamálum enda hefur hann alltaf gefið sig út fyrir að vera mannréttindasinnaður. Mér skjátlaðist.

Annars þarf Ögmundur náttúrulega ekkert að standa undir mannúðarsinnamerki-miðanum meir enda ekkert mannréttindaráðuneyti til lengur. Það var bara of stór áskorun fyrir hægri sinnaða vinstri menn á Íslandi að gera mannréttindi að jafn sjálfsögðu máli og efnahagsstjórn og menntamálum.

Forvirkar rannsóknarheimildir eiga að sjálfsögðu aðeins að beinast gegn glæpagengjum. Samt er um að ræða forvirkar heimildir, þ.e.a.s. það þarf enginn glæpur að liggja fyrir til að þeim sé úthlutað. Nú þyrfti Ögmundur að svara því hvernig á að skilgreina glæpagengi ef ekki sem hóp sem hefur framið glæpi. Væntanlega sem hóp sem yfirvöldum finnst líklegt að hafi áhuga á að fremja glæp en hann mun áreiðanlega orða það á smekklegri máta. Og næsta víst að mikill fjöldi bjána muni gleypa kúkinn ef hann er innpakkaður í karamellubréf.

Sennilega verða mótorhjólasamtök fyrstu hóparnir sem verða fyrir forvirkum rannsóknarheimildum. Næst verða það aðgerðasinnar. Aðgerðarsinnar eru fólk sem grípur til beinna aðgerða, stundum ólöglegra, í þeim tilgangi að vekja athygli á meiriháttar ranglæti. Fólk sem hefur þá afstöðu að nauðsyn brjóti lög og að mannréttindi séu lögum æðri. Fólk sem er tilbúið til að fremja glæpi á borð við að trufla vinnu og standa á gangstétt á Laufásveginum með pappaspjald til þess að fá yfirvöld til að hlusta. Sumir aðgerðasinnar brjóta lög og það er því auðvelt að skilgreina þá sem glæpagengi.

Það getur vel verið að Ögmundur hafi engan áhuga á pólitísku andófsfólki. Ég treysti honum að vísu ekki fyrir horn lengur en það er svosem alveg hugsanlegt að hann ætli ekki að gefa leyfi til persónunjósna gagnvart neinum nema hórmöngurum og dópsölum. Ég er hinsvegar nokkuð viss um að hægri stjórnin sem kemur næst, velur innanríkis/dómsmála/mannréttindaráðherra, sem hefur mikinn áhuga á að njósna um hvern þann sem mótmælir yfirvöldum eða er líklegur til þess.

Við skulum ekki gleyma því að jafn venjulegur pólitíkus og Svavar Gestsson sætti persónunjósnum á sínum tíma. Maður sem hryðjuverkasamtök og glæpagengi myndu líta á sem algeran lúða og hefur sennilega aldrei framið stærri glæp en þann að leggja ólöglega, ef þá það. Bláa höndin njósnaði um Svavar, ekki af því að hann væri grunaður um glæp, heldur af því að hann var grunaður um að þekkja einhvern sem þekkti einhvern sem þekkti einhvern sem þekkti glæpagengi. Nánar tiltekið Stasi.

Hversu langt er þar til einhver sem þekkir einhvern sem þekkir Birgittu Jónsdóttur verður sviptur einkalífi sínu, af því að Bandaríkjamenn hafa skilgreint Wikileaks sem hryðjuverkasamtök? Verður það í tíð Ögmundar? Eða kannski ekki fyrr en eftir nokkur ár?

Ég fagnaði þegar Ögmundur varð mannréttindaráðherra. Ég krossaði mig þegar Össur varð utanríkisráðherra og er ég þó ekki einu sinni kristin. Össur sýndi þó þá döngun að taka mál Sakine Ashtiani upp við sameinuðu þjóðirnar. Mér fannst svolítið neyðarlegt að sjá samfylkingarskrípil standa sig betur í mannréttindamálum en mannréttindaráðherra sem ég hafði alltaf haft mætur á en það var þó bara neyðarlegt. Þetta nýjasta útspil Ögmundar er ekki neyðarlegt, það er sjúkt og rangt. Jafn sjúkt og rangt og ef Svandís Svavarsdóttir byði trukkaköllum að halda torfærukeppni á Þingvöllum.

Ég spái því að lögreglan eigi eftir að fá heimildir til að fylgjast með tölupósti Svandísar Svavarsdóttur. Þegar allt kemur til alls hefur hún tengsl við náttúruverndarsamtök (og hver er svosem munurinn á umhverfissinnum og hryðjuverkamönnum?) en auk þess er pólitísk óþekkt í ættinni hennar. Ögmundi finnst ætternið kannski ekki tilefni til njósna en þegar sjallarnir komast aftur til valda verða það meira en nógu góð rök. Og ef það dugar ekki til þá hlýtur bróðir hennar að þekkja einhvern sem þekkir gaur sem á mótorhjól.

Share to Facebook

One thought on “Forvirkar rannsóknarheimilidir á Svandísi

  1.  ———————
    Við samþykkt Icesave þrjú á Alþingi voru fyrstu Icesave lögin felld úr gildi, þar með talin áttunda grein þeirra sem hljómaði svo:
    8. gr. Endurheimtur á innstæðum.

    Ríkisstjórnin skal þegar í stað grípa til allra nauðsynlegra ráðstafana sem þarf til að endurheimta það fé sem safnaðist inn á Icesave-reikningana. Í þeim tilgangi skal ríkisstjórnin fyrir 15. október 2009 hafa frumkvæði að samstarfi við þar til bæra aðila, m.a. yfirvöld í Bretlandi, Hollandi og Evrópusambandinu, og óska aðstoðar þeirra við að rekja hvert innstæðurnar af Icesave-reikningunum voru fluttar. Ríkisstjórnin skal fyrir árslok 2009 semja áætlun um hvernig reynt verður að endurheimta það fé sem kann að finnast.

    Í því skyni að lágmarka ríkisábyrgð samkvæmt lögum þessum skal ríkisstjórnin einnig gera ráðstafanir, í samráði við þar til bæra aðila, til þess að þeir sem kunna að bera fjárhagsábyrgð á þeim skuldbindingum sem stofnast hafa vegna Icesave-reikninganna verði látnir bera það tjón.

    Hreyfingin lagði fram breytingartillögu um að setja þessa grein aftur inn en hún var felld af meiri hluta þings, þar með talið sjálfstæðismönnum. Með því að fella út þessa grein dregur verulega úr því að hinir seku verði dregnir til ábyrgðar.

    Ögmundur Jónasson var á meðal þeirra sem sagði nei. Hann mætti svara því hvers vegna hann veitir hryðjuverkamönnum friðhelgi en ofbeldismönnum ekki.

    Posted by: Elín Sigurðardóttir | 5.03.2011 | 14:53:33

     ———————

    Heyr, heyr!!

    Posted by: Skuggi | 5.03.2011 | 18:13:56

     ———————

    Those who are ready to sacrifice Freedom for Security deserve neither – Benjamin Franklin.

    Mér datt nú fyrst í hug að Eva væri úti að skíta þegar hún ber saman Hells Angels og umhverfisverndarsinna..en þegar heilinn minn fer að spinna út frá þessu þá meikar þetta að nokkru sens. Kerfið verður aldrei sigrað nema að ALLIR (hinir) sameinist gegn því. Eftirleikurinn er að vísu flókinn. En allt er betra en status quou.

    Posted by: Kalli Rögnvalds | 7.03.2011 | 0:37:02

     ———————

    Kalli. Ég hef ekki borið saman vítisengla og umhverfissinna. Ég er hinsvegar ekki í nokkrum vafa um að yfirvöld munu gera það.

    Tilvitnunin þín í B. Franklin segir allt sem segja þarf. Þótt sé ástæða til að tortryggja vítisengla er algert brjálæði að setja lög um forvirkar rannsóknarheimildir þeirra vegna. Þær verða nefnilega notaðar gegn öðrum hópum og umhverfis- og mannréttindahreyfingar eru fyrstu hóparnir sem verða fyrir því á eftir vítisenglum.

    Posted by: Eva | 7.03.2011 | 12:41:29

Lokað er á athugasemdir.