Blogggáttin 2017

Ég var að skrá norn.is á Blogggáttina en ég hef ekki fylgst með henni í mörg ár. Listinn yfir mest lesnu blogg ársins hefur ekki verið uppfærður frá 2011. Mér sýnist reyndar að stórir netmiðlar sem hafa auglýsingatekjur, og eru uppfærðir oft á dag, hafi nánast yfirtekið Bloggáttina. Þeir sem halda úti sínum eigin lénum eru lítt sýnilegir og bloggarar sem birta skrif sín á bloggsvæðum stóru miðlanna eru í þeirri undarlegu stöðu að keppa um athyglina við miðlana sem þeir skrifa fyrir, frítt. Halda áfram að lesa

Post mortem

Bloggið er dautt. Þá á ég við perónulega bloggið sem var vinsælt á árunum 2002-2012, þar sem fólk sagði sögur úr hversdagslífi sínu og viðrar pælingar sínar um daginn og veginn.  Ekki reyndar alveg steindautt en Þórdís Gísladóttir er kannski síðasti móhíkaninn. Halda áfram að lesa