Amma Hulla var sjálfstæðismaður. Að vísu kaus hún kratana en það sagði hún ekki nokkrum manni. Ekki fyrr en fimm árum áður en hún dó. Ég mátti ekki segja afa það. Hann var kommi og það hefði klúðrað hinu pólitíska ógnarjafnvægi sem ríkti á heimilinu ef hann hefði rennt í grun að hollusta hennar við íhaldið væri orðum aukin.

Sem sannur sjálfstæðismaður hafði Amma Hulla ímugust á þeirri hugmynd að ríkið ætti að styðja menningu sem var henni ekki að skapi. Hefði einhver í fjölskyldunni fengið listamannalaun hefði hún fagnað manna mest en flestir sem fengu þau voru að hennar mati vitleysingar eða letingjar og oftast hvort tveggja. Listamenn áttu bara að standa undir sér eins og aðrir, selja sín verk þeim sem vildu þau en ekki láta aðra borga. Þegar ég spurði hana hvort væri þá ekki líka eðlilegt að þeir sem notuðu sjúkrahús og götur borguðu fullt verð fyrir þjónustuna var það einhvernveginn allt annað. Af því að þessir hlutir voru nauðsynlegir. Það var ekki sanngjarnt að sá sem ætlaði norður í land borgaði himinháan vegatoll en það var samt eðlilegt að sá sem vildi lesa bók borgaði mánaðarlaun fyrir eintakið. Nema það væri ævisaga áhugaverðrar manneskju, henni þóttu þær dýrar.

Amma var auk þess með tuskudellu og laus við söfnunaráráttu. Hlutir sem ekki voru neinum að ánægju eða gagni voru einfaldlega rusl og áttu heima á haugunum. Hún umbar bækurnar hans afa af því að hann hafði ánægju af þeim en hafði oft á orði að sumar þeirra væru reyndar ólesnar og gegndu ekki öðru hlutverk en að draga að sér ryk. Ég er reyndar sammála henni hvað þetta varðar. Megnið af þeim pappírsbókum sem eru til á tölvutæku formi mættu mín vegna fara í endurvinnslu.

En sitt er hvað ólesin, fjöldaframleidd bók og ólesin bók í einu eintaki. Ætli það hafi ekki verið 1996 eða 1997 sem kom upp leki í kjallara Þjóðarbókhlöðunnar. Ég var í öngum mínum af tilhugsuninni um að einhver ólesin handrit kynnu að skemmast en eitthvað hafði heyrst um að fjöldi bóka, bréfa og annarra skjala frá 18. öld lægi undir skemmdum. Þegar ég lýsti áhyggjum mínum af þessu svaraði amma; „og til hvers á að geyma þetta gamla rusl? Er ekki löngu búið að setja Íslendingasögurnar í tölvu?“

Þetta atvik rifjast alltaf upp fyrir þér þegar fólk agnúast út í framlög hins opinbera til menningar, varðveislu fornrar þekkingar, náttúruverndar og annarra óáþreifanlegra verðmæta. Það er engu líkara en að fólk skilji hreinlega ekki hvað það er sem málið snýst um.