Einhvernveginn snerist umræðan um klámvæddu móðurástina upp í pælingar um soralegt ímyndunarafl Maríu Lilju sem stakk upp á hugsanleika þess að eldiviðardrumbarnir væru reðurtákn. Mér finnst kostulegt að fólk skuli velja að beina athyglinni að því smáatriði fremur en því sem málið snýst um, sem er einhverskonar daður við sifjaspell, leikur að hugmyndinni um fegurðarsamkeppni móður og dóttur, tilraun til að má út mörkin milli ástúðlegs sambands og erótísks, kannski fleira. Ég get alveg skilið að einhverjum leiðist klámvæðingarfóbía en ósköp er það nú dapurlegt ef má ekki ræða þessa hluti. Í dag sá ég umræður um að þessi túlkun á viðardrumbum sem reðurtáknum gæfi dónaskapnum í manni alveg nýtt svigrúm, nú mætti jafnvel líta á swiss miss auglýsingar sem handbendi klámvæðingarinnar og jájá, það væri langt seilst að sjá eldiviðinn í swiss miss auglýsingu sem reðurtákn en kommon, þar eru heldur engar mæðgur að káfa hvor á annarri í sokkabandabeltum.

Umræddar myndir eru ekki nærfataauglýsingar nema að nafninu til. Þær eru fyrst og fremst pólitísk list (hvort sú list er vond eða góð ætla ég ekki að leggja mat á.) Það er auglýsandinn sjálfur sem vekur athygli á fjölskylduböndunum svo augljóslega snúast myndirnar um tengsl kvennanna en ekki klæðnað þeirra. Auglýsingunni er ekki ætlað að sýna „fallegt samband móður og dóttur“ heldur að ögra hugmyndum okkar um það hverskonar tengsl séu viðeigandi milli náinna ættingja og í hvaða félagsskap sé “eðlilegt” að vera eingöngu í undirfatnaði. Mér finnst fullkomlega eðlilegt að fólk velti þessum myndum fyrir sér með tilliti til siðferðis og kláms. Allavega efast ég um að það sé algengt að mæður dressi sig upp í sokkabönd áður en þær láta ástúðlega að dætrum sínum enda er það víst sjaldgæfni þessa ástúðlega sambands sem á að selja.

Ég viðurkenni að mér verður dálítið flökurt við tilhugsnunina um kynferðissambönd náinna ættingja. Hvað þá innan minnar eigin fjölskyldu. Hugsunin nær því ekki einu sinni að verða meira en aðkenning að mynd heldur kippist hún til baka um leið og hún snertir bannsvæðið, líkt og fingur af heitri hellu. Bara eitthvað sem tepran í mér ræður ekki við og líklega gæti ég neytt hana til þess, þanið þolmörk hennar en ég sé ekki tilgang í því, allavega ekki eins og er.

En kynferðissambönd náinna ættingja eru samt til, hvað svo sem teprunni í mér finnst um það. Og hvað kemur mér það við? Hvað kemur löggjafanum það við?  Hversvegna ætti fullorðið fólk ekki bara að haga sínum samböndum eins og því sjálfu sýnist án tillits til blóðbanda, sokkabanda eða þeirra fjötra sem úreltar samfélgasaðstæður leggja á okkur? Hvað er að því að systkini sofi saman? Eða mæðgur? Einhvernveginn segir mér svo hugur um að viðbrögðin við myndunum hefðu orðið harðari ef faðir hefði faðmað 19 ára dóttur sína á nærtötum. Ég er nokkuð viss um að einhverjir hefðu túlkað það sem normaliseringu á barnamisnotkun og já, ég get skilið að jafnvel hið frjálslyndasta fólk, jafnvel þeir sem gútera sambönd náinna ættingja, líti á það sem leik að eldi svo jafnvel þótt ég kyngi teprunni er ég engan veginn viss um að það sé í lagi að hafa alla þætti veruleikans til sýnis.

Hvað eldiviðinn varðar þá hefur honum væntanlega verið stillt upp þarna í einhverjum tilgangi.  Þegar eldiviður er sýndur í swiss miss auglýsingu er samhengið augljóst og þægilegt. Kakó er heitur drykkur sem fólk fær sér þegar það kemur inn úr kuldanum. Eldiviðurinn undirstrikar það markmið að fá hita í kroppin (vá af hverju dettur mér í hug að það geti hljómað dónalega?) og skapa notalega stemningu. En hver er tilgangur eldiviðar í nærfataauglýsingu? Hvort sem reðurtákn er augljós skýring eða ekki, á spurningin fullkomlega rétt á sér.

Mér detta í hug fleiri skýringar. Kannski eiga skilaboðin að vera þau að hér sé á ferð eldfimt efni. Eða að þótt eldiviðurinn sé til staðar, logi hreint ekki eldar bara af því að kona klæðist sokkaböndum.

Eða kannski stillti stílistinn drumbunum upp og flissaði, leit sposkur á ljósmyndarann og sagði; djöfull skal ég veðja að þetta verður túlkað sem reðurtákn.

En halló gæjs, það skiptir ekki öllu máli hvort eldiviðardrumbur er reðurtákn í þessu samhengi eða eitthvað annað. Þetta snýst nefnilega ekkert um reður.

Mynd: Mosmas, Wikimedia