ES (eftir að hafa hesthúsað 9 ólívur og 1/2 lárperu (litla)): Sko, áður en við byrjuðum að borða var ég svo svangur að é…
Posted by Eva Hauksdottir on 19. janúar 2016
Greinasafn fyrir merki: Eynar
Lúsíukettir
Einar er að baka lúsíuketti. Einhvernveginn vöktu deigsnúðarnir á plötunni hjá honum pælingu um það hvernig þetta plús þetta sinnum eitthvað í öðru veldi plús N verður eitthvað óskiljanlegt sem reyndist svo einni mínútu síðar vera augljóst. Mér finnst þetta góð ástæða til að forðast jólabakstur. Auk þess er saffran ofmetið. Ég hefði bara notað kanel.
Það er hefð fyrir því á okkar heimili að bjóða upp á jólaglögg á aðventunni. Sú hefð verður viðhöfð í fyrsta sinn í dag og mun heppnast gífurlega vel.
Uppfært 22:13
Þetta var ágætt.
Jólabakstur
Einar er að baka lúsíuketti. Einhvernveginn vöktu deigsnúðarnir á plötunni hjá honum pælingu um það hvernig þetta plús þetta sinnum eitthvað í öðru veldi plús N verður eitthvað óskiljanlegt sem reyndist svo einni mínútu síðar vera augljóst. Mér finnst þetta góð ástæða til að forðast jólabakstur. Auk þess er saffran ofmetið. Ég hefði bara notað kanel.
Frítekjumarkið
Eva: Hvað er þetta eiginlega með frítekjumarkið, af hverju er verið að refsa fólki fyrir sjálfsbjargarviðleitni?
Einar: Þú misskilur þetta. Það er verið að refsa því fyrir að vera öryrkjar.
Ástin
Maðurinn minn gaf mér tölvu með Windows. Við erum að tala um alvöru ástarjátningu. Svona eins og ef KR-ingur hefði gefið konunni sinni 5 ára miða á alla leiki Vals.
Ráðgáta
Á svo til hverjum degi stendur Eynar frammi fyrir sömu ráðgátunni. Senan er (með tilbrigðum) eitthvað í þessa veru: Halda áfram að lesa
Hvað ætlarðu að verða?
Þegar Eynar var lítill ætlaði hann að verða drykkjumaður. Þegar hann var unglingur ætlaði hann að verða öreigi.Sem…
Posted by Eva Hauksdottir on 2. maí 2015